Fjármögnun
Nýsköpunarsjóðurinn Kría
Nýsköpunarsjóðurinn Kría er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins sem varð til við samrun Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóðs. Hlutverk sjóðsins er að auka framboð fjármagns og fjármögnunarkosta fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki og auka viðnámsþrótt fjármögnunarumhverfisins. Sjóðurinn hefur jafnframt það hlutverk að hvetja, með fjárfestingum sínum, einkafjárfesta til þátttöku í fjármögnun nýsköpunar.
Tækniþróunarsjóður
Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Fjármögnun og ábyrgð sjóðsins er í höndum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins en umsýsla sjóðsins er í höndum Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís) við ráðuneytið.
Matvælasjóður
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.
Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa.
Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina
Hlutverk Lóustyrkja er að auka við nýsköpun á landsbyggðinni og styðja við eflingu byggðaog landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins sem komin eru af byrjunarstigi. Ráðuneyti nýsköpunarmála auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki úr Lóu.
Fléttan - styrkir til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu
Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunarfyrirtækja sem skapað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni heilbrigðiskerfisins. Styrkjunum er úthlutað til verkefna sem styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðistækni, -vörum og -þjónustu. Ráðuneyti nýsköpunarmála auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki úr Fléttunni.
Orkusjóður
Orkusjóður hefur það hlutverk að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkulinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Orkusjóður er samkeppnissjóður. Styrkumsóknir eru metnar út frá hlutverki og tilgangi sjóðsins og þeim áhersluatriðum sem fram koma í auglýsingum um styrki hverju sinni.
Byggðastofnun
Byggðastofnun veitir langtímalán til fjárfestinga, hagræðingar og fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja á starfssvæði stofnunarinnar. Lánastarfsemi Byggðastofnunar er valkostur í fjármögnun sem stuðlar að hagstæðum lánskjörum og lánsframboði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í landsbyggðunum. Sérstök athygli er vakin á lánaflokki til stuðnings atvinnurekstri kvenna á landsbyggðunum og lánum til jarðakaupa/kynslóðaskipta í landbúnaði í því skyni að styðja við nýliðun, nýsköpun og framþróun í greininni.
Svanni
Svanni Lánatryggingasjóður kvenna. Meginmarkmið sjóðsins er að styðja konur til nýsköpunar í atvinnulífi með því að veita ábyrgðir á allt að helming lána sem tekin eru lánastofnun til að fjármagna tiltekið verkefni.
Sprotasjóður
Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn-og framhaldsskóla og styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá.
Atvinnumál kvenna
Sjóðurinn Atvinnumál kvenna veitir styrki til atvinnuþróunarverkefna kvenna víðsvegar um landið. Styrkirnir eru veittir af félagsmálaráðuneytinu en það er Vinnumálastofnun sem að hefur vistað verkefnið hin síðustu ár.
Umhverfissjóður sjókvíaeldis
Umhverfissjóður sjókvíaeldis starfar samkvæmt lögum nr. 71/2008 um fiskeldi, og er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Árið 2021 munu njóta forgangs rannsóknarverkefni á laxalús, kynlausum eldisfiskum (genaþöggun) og orkuskiptum í sjókvíaeldi. Sjóðurinn styrkir einnig verkefni á sviði burðarþolsmats og vöktunar.
Uppbyggingasjóðir landshlutanna
Uppbyggingasjóðir landshlutanna eru hluti sóknaráætlana landshluta sem eru þróunaráætlanir og fela í sér stöðumat, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Forgangsröðun verkefna í hverjum landshluta byggir á sóknaráætlun hans. Þannig er fjármunum sem varið er til verkefna á sviði atvinnu-, byggða- og menningarmála ráðstafað af heimamönnum samkvæmt áherslum sem mótaðar hafa verið af breiðum hópi þeirra. Sóknaráætlunum er ætlað að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni hvers landshluta sem og landsins alls. Samkvæmt gildandi samningum um sóknaráætlanir landshluta renna framlög ríkisins annars vegar til uppbyggingar sjóða og hins vegar til áhersluverkefna. Ábyrgð og utanumhald uppbyggingasjóðanna er í höndum átta landshlutasamtaka sveitarfélaga.
Styrkir til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki til gæða- og nýsköpunarverkefna í heilbrigðisþjónustu. Tilgangur styrkveitinganna er að stuðla að umbótastarfi, nýbreytni og auknum gæðum heilbrigðisþjónustu og jafnframt eru þeir ætlaðir sem hvatning og viðurkenning fyrir störf á þessu sviði.
Sjá einnig upplýsingasíðu um stuðning við vísinda- og tæknirannsóknir hér á vefnum
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Útgefið efni
Nýsköpun
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.