Fléttan - styrkir til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu
Umsóknarfrestur í Fléttuna 2024 rann út 10. maí 2024
Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunarfyrirtækja sem skapað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni kerfisins.
Til ráðstöfunar árið 2024 voru 100.000.000 kr.
Styrkjum er úthlutað til verkefna sem styðja við innleiðingu nýsköpunar í heilbrigðistækni, -vörum og -þjónustu, því er strykjum ekki úthlutað til verkefna sem eru á hugmynda- eða byrjunarstigi. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir og er þeim úthlutað til verkefna til eins árs í senn.
Styrkveitingin er háð því skilyrði að nýsköpunarfyrirtækin eigi í nánu samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem skuldbinda sig til að innleiða þá nýsköpun sem styrkur er veittur til. Lögð er sérstök áhersla á stuðning við samstarf hins opinbera og einkaaðila um land allt.
Sérstakt fagráð leggur mat á umsóknir og verður m.a. horft til þátta á borð við:
- Mikilvægi verkefnis fyrir innleiðingu nýrra vara, nýrrar þjónustu eða nýrra hugbúnaðarlausna sem geta bætt þjónustu og/eða aukið hagkvæmni í rekstri heilbrigðiskerfis.
- Mikilvægi verkefnis fyrir aukna verðmætasköpun og/eða bætta þjónustu.
- Skalanleiki verkefnis, þ.e.a.s. hvernig umsækjandi sér fram á þróun verkefnisins, stækkun og nýtingu fyrir fleiri innan heilbrigðiskerfisins með það að markmiði að innleiðingin bæti þjónustu við sjúklinga, stytti biðlista og auki skilvirkni kerfisins.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrksins.
Opnað var fyrir umsóknir til 10. maí 2024.
Fagráð Fléttunnar er þannig skipað:
- Ásta Þórarinsdóttir, formaður
- Gunnar Örn Jóhannsson
- Kristin Ninja Guðmundsdóttir
- Einar Gunnar Thoroddsen
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa ekki beint samband við fulltrúa í fagráði Fléttunnar. Fyrirspurnum og ábendingum skal beint á netfangið [email protected].
Umsóknarform má nálgast á minarsidur.hvin.is
Reglur Fléttunnar og upplýsingar:
- Reglur um úthlutun styrkja á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til innleiðingar nýsköpunar í heilbrigðisþjónustu
- Lokaskýrsluform
Nánari upplýsingar veitir:
- Sigurður Steingrímsson: [email protected]
Fléttan er samstarfsverkefni háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis, fjármálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis.
Verkefni sem hlutu styrk árið 2024:
- Hrafnista - Smáforritið Iðunn
- Leviosa - Innleiðing Leviosa í GynaMEDICA
- Memaxi - Hátindur 60+: Skjáheimsóknir í dreifbýli sem framtíðarlausn í öldrunarþjónustu
- Grund - Innleiðing sjúkraskrársamþættrar skráningar og upplýsingamiðlunarsnjalllasna fyrir öldrunarþjónustu
- Anna Birna Almarsdóttir - Vitundarvakning og valdefling eldra fólks um notkun á svefnlyfjum og róandi lyfjum
- Heilsugerðin/Erla Gerður Sveinsdóttir - Innleiðing á rafrænum námskeiðum við offitumeðferð hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og Sjúkrahúsinu á Akureyri
- Skræða - Innleiðing sjúkrasrkársamþætts lyfjaávísunar- og lyfjaskráningarhugbúnaðar hjá SÁÁ-sjúkrastofnunum
- Heilsugæsla Reykjavíkur - Innleiðing hugbúnaðarlausna Prescriby
- Miðeind - Aukin skilvirkni Miðstöðvar um sjákraskrárritun með hjálp gervigreindar
- Miðeind - Bætt þjónusta með upplýsingaleit og spurningasvörun
- Medvit Health - Nýrnavernd: samvinnukerfi fyrir meðhöndlun nýrnasjúkdóma
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.