Gildandi byggðakort fyrir Ísland
Byggðakort fyrir Ísland gildir fyrir tímabilið 1. júlí 2014 til 31. desember 2021. Byggðakortið skilgreinir á hvaða svæðum á Íslandi unnt er að veita svokallaða byggðaaðstoð í samræmi við leiðbeinandi reglur ESA þar um. Byggðaaðstoð eða svæðisbundin ríkisaðstoð er stuðningur ríkis eða sveitarfélaga til að efla byggðaþróun og efnahagslíf á ákveðnu landsvæði. Kortið skiptist í höfuðborgarsvæðið (Reykjavíkurkjördæmin tvö og Suðvesturkjördæmi) og Ísland utan höfuðborgarsvæðisins (Norðvesturkjördæmi, Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi). Á síðarnefnda svæðinu, þar sem rúmlega 35% þjóðarinnar búa, er mögulegt að veita byggðaaðstoð samkvæmt reglum EES-samningsins um ríkisaðstoð.
Byggðaaðstoð er ýmist veitt að fengnu samþykki ESA að undangenginni tilkynningu stjórnvalda um fyrirhugaðar ráðstafanir, eða í samræmi við reglur um aðstoð sem undanþegin er tilkynningarskyldu, sbr. kafli um byggðaaðstoðar vegna fjárfestingarverkefna í reglugerð (ESB) um almenna hópundanþágu (GBER). Ígildi aðstoðar getur numið 15% af styrkhæfum fjárfestingarkostnaði þegar um stór fyrirtæki er að ræða en hámarks hlutföllin eru 25% og 35% fyrir meðalstór og lítil fyrirtæki.
- Ákvörðun ESA um byggðakortið
- Ákvörðun ESA um framlengingu byggðakorts til 31. 12. 2021 (birt 3.9.2020).
- Íslensk þýðing ákvörðunar ESA um byggðakort
- Leiðbeinandi reglur ESA um svæðisbundna ríkisaðstoð fyrir árin 2014-2020 (e. National regional aid)
- Íslensk þýðing leiðbeinandi reglna ESA um svæðisbundna ríkisaðstoð fyrir árin 2014-2016
Ríkisaðstoð
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.