Alþjóðlegt samstarf
Rík þörf er á því að íslensk stjórnvöld gæti hagsmuna Íslands á alþjóðavettvangi þegar kemur að hagsmunum sjávarútvegs og fiskeldis, ekki síst vegna útflutningshagsmuna enda áætlað að yfir 95% af sjávarafurðum sem framleiddar eru hérlendis séu seldar á erlendum mörkuðum.
Virk þátttaka Ísland á alþjóðavettvangi og frumkvæði í ábyrgri og sjálfbærri nýtingu auðlinda er nauðsynlegur grundvöllur þess að sjávarútvegur og önnur auðlindadrifin starfsemi geti dafnað og eigi áfram sterka markaði fyrir afurðir á heimsvísu. Ísland er ein af fárra þjóða þar sem sjávarútvegur er burðargrein í útflutningi, því er ekki hægt að reiða sig á að aðrar þjóðir gæti hagsmuna landsins á alþjóðavettvangi í sjávarútvegsmálum. Sjávar- og fiskafurðir eru einnig í harðri samkeppni við aðra matvælageira á alþjóðamörkuðum, þar sem við stórar matvælakeðjur er að etja.
Kjarnahagsmunir hverfast því um ímynd íslenskra sjávarafurða, sem og sjávarafurða almennt á alþjóðlegum mörkuðum. Í því felst að stjórnvöld þurfa að vera leiðandi málefnum hafsins á alþjóðavísu, en til þess þarf Ísland að geta haldið fram góðri stöðu sjávarútvegs innanlands hvað varðar ábyrga og sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins.
Meginstoðir í afstöðu Íslands eru þannig sjálfbær nýting auðlinda og ábyrg framkvæmd alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að.
Ísland tekur þátt í margs konar samstarfi um málefni hafsins á alþjóðavettvangi s.s. á vettvangi:
- Matvæla og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO)
- Fiskveiða- og fiskeldisskrifstofu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD)
- Fiskveiða- og fiskeldisdeildar Norræna ráðherraráðsins
Einnig semur Ísland við önnur lönd um veiði deili- og flökkustofna.
Íslensk stjórnvöld semja beint við önnur ríki um veiðar úr eftirfarandi nytjastofnum: Grálúðu, gullkarfi, Dohrnbanka rækju, karfa á Reykjaneshrygg, þorskur í Barentshafi og loðnu.
Íslensk stjórnvöld semja einnig um veiðar úr deili-eða flökkustofnum gegnum svæðisbundnar fiskveiðistjórnunarstofnanir í Atlantshafi, þær eru:
- Norðaustur Atlantshafs fiskveiðistjórnunarnefndin (NEAFC). Sjá lög um aðild Íslands að samningi um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi.
- Norðvestur Atlantshafs fiskveiðistjórnunarstofnuninni (NAFO). Sjá lög um framkvæmd samnings um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi
- Atlantshafs túnfiskveiðiráðið (ICCAT)
Hvað varðar nýtingu hvalastofna tekur Ísland þátt í samstarfi innan Norður Atlantshafs sjávarspendýraráðsins, NAMMCO og Alþjóða hvalveiðiráðsins.
Sjávarútvegur og fiskeldi
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.