Reglur byggðakvóta 2020-2021
Samkvæmt reglugerð nr. 731/2020, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2020/2021, skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflamarki sem nemur allt að 4.810 þorskígildistonnum af botnfiski til að ráðstafa til byggðarlaga sem falla undir skilyrði a. og b. liðar í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar.
Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórna að vikið sé frá almennum reglum samkvæmt tillögum hlutaðeigandi sveitarstjórna enda rökstyðji sveitarstjórnir tillögur sínar og sýni fram á að skilyrði lögð er séu byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum.
Staðfestar sérreglur sveitarfélaga hafa þegar verið birtar með auglýsingu nr. 271/2021, um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021 með síðari breytingum sbr. auglýsingu nr. 307/2021, um (1.) breytingu á auglýsingu um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021.
Með vísan til 3. gr. reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021 þá eru tillögur sveitastjórna um sérreglur vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiársins 2020-2021 birtar á vef ráðuneytisins til kynningar.
Borist hafa viðbótartillögur þið þegar birtar sérreglur og er frestur til að senda inn athugasemdir til ráðuneytisins á [email protected] vegna tillagna Akureyrarbæjar til 5. apríl n.k. Að þeim tíma liðnum mun ráðuneytið taka afstöðu til þeirra tillagna sem borist hafa frá sveitarfélögum og í framhaldinu auglýsa sérreglur fyrir viðkomandi sveitarfélög.
Viðbótartillögur einstakra sveitarfélaga varðandi sérreglur sem víkja frá almennum skilyrðum reglugerðar nr. 728/2020, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021 má finna hér:
- Akureyrarbær vegna Hríseyjar
- Árneshreppur
- Blöndós
- Bolungarvík (ekki óskað eftir sérreglum)
- Dalvíkurbyggð
- Fjallabyggð
- Fjarðabyggð
- Grundarfjörður (ekki óskað eftir sérreglum)
- Grýtubakkahreppur
- Húnaþing vestra
- Ísafjarðarbær
- Kaldrananeshreppur
- Langanesbyggð
- Múlaþing (ekki óskað eftir sérreglum)
- Norðurþing
- Snæfellsbær
- Strandabyggð
- Stykkishólmur
- Suðurnesjabær (einungis óskað eftir sérreglum fyrir Garð)
- Súðavíkurhreppur
- Sveitarfélagið Árborg
- Sveitarfélagið Hornafjörður
- Sveitarfélagið Skagafjörður
- Sveitarfélagið Skagaströnd
- Sveitarfélagið Vogar
- Sveitarfélagið Ölfus
- Tálknafjarðarhreppur
- Vesturbyggð
- Vopnafjarðarhreppur (ekki óskað eftir sérreglum)
Birt 25.9.2020
Uppfært 4.2.2021
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.