Almenn viðskiptamál
Stefnumótun og almenn löggjöf um viðskiptamál, s.s. rafræn viðskipti, félagaréttur, samkeppnismál, faggilding, fjárhagsupplýsingar fyrirtækja, endurskoðendur og endurskoðun, skráning í fyrirtækjaskrá, fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri og fyrningu er í höndum menningar- og viðskiptaráðuneytis.
Leiðbeinandi reglur OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki
Skrifstofa viðskipta og ferðamála í menningar- og viðskiptaráðuneytinu er tengiliður Íslands (NCP) í tengslum við leiðbeinandi reglur OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki.
Tengiliðir hvers lands (NCPs) aðstoða fyrirtæki og hagsmunaaðilum þeirra við að gera viðeigandi ráðstafanir til að efla fylgni við leiðbeiningarnar og vera vettvangur sátta við að leysa mál sem kunna að koma upp við innleiðingu þessara leiðbeinandi reglna.
- Leiðbeinandi reglur OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki á ensku.
- Leiðbeiningar OECD um áreiðanleikakönnun um ábyrga viðskiptahætti á ensku
- Tilmæli OECD um hlutverk stjórnvalda við að stuðla að ábyrgum viðskiptaháttum á ensku
- Síðustu ársskýrslur varðandi leiðbeinandi reglur OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki á ensku
- Jafningjarýni OECD á NCP á Íslandi 2024
- Senda fyrirspurn til tengiliðs NCP á Íslandi
- Myndband um ábyrga viðskiptahætti og leiðbeinandi reglur OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki
- Leggja fram kvörtun til NCP á Íslandi
Ef þú vilt leggja fram kvörtun til hins íslenska NCP, vinsamlegast sendið á almenna netfang ráðuneytisins: [email protected].
Í kvörtuninni þarf eftirfarandi að koma fram:
- Tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitala, netfang og símanúmer þess sem kvartar.
- Fyrir hönd hvers kvörtunin er lögð fram.
- Nafn, heimilisfang, og aðrar viðeigandi upplýsingar um fyrirtækið, yfirvaldið eða stofnunina er kvörtunin beinist að.
- Rök fyrir kvörtuninni, þar á meðal lýsing á atburðum, framkomu og hlutverki hlutaðeigandi fyrirtækis og tilvísun í þann hluta leiðbeinandi reglna OECD fyrir alþjóðleg fyrirtæki um ábyrga viðskiptahætti sem kvartandi telur fyrirtækið ekki hafa farið eftir.
- Afrit af gögnum sem styðja kvörtunina.
Ef spurningar vakna:
Sendið tölvupóst á hið íslenska NCP, sem er staðsett á skrifstofu viðskipta og ferðamála í menningar- og viðskiptaráðuneytinu, á almennt netfang ráðuneytisins [email protected] ef þörf er á aðstoð eða frekari leiðbeiningum varðandi kvörtunarferlið.
Viðskipti
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.