Hoppa yfir valmynd

Ársreikningar

Markmið löggjafar á sviði endurskoðunar, bókhalds og ársreikninga er að stuðla að heilbrigðu og gagnsæju viðskiptaumhverfi.

Ársreikningar skulu endurspegla raunverulega stöðu félaga og hlutverk þeirra er að vera upplýsingaveita fyrir viðskiptalífið, eftirlitsaðila og aðra haghafa.

Ársreikningaskrá

Skatturinn starfsrækir ársreikningaskrá skv. lögum um ársreikninga, nr. 3/2006. Ársreikningaskrá tekur við, til opinberrar birtingar, ársreikningum félaga sem falla undir lög um ársreikninga.

Reikningsskilaráð

Ráðherra skipar fimm sérfróða menn til fjögurra ára í senn í reikningsskilaráð. Hlutverk þess er að stuðla að mótun settra reikningsskilareglna með útgáfu og kynningu samræmdra reglna sem farið skal eftir við gerð reikningsskila. Þá skal ráðið gefa álit á því hvað teljist settar reikningsskilareglur á hverjum tíma og starfa í nánu samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og hagsmunaaðila.

Sjá vefinn reikningsskilarad.is.

Sjá einnig:

Lög og reglugerðir

 

Síðast uppfært: 3.1.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta