Faggilding
Faggilding er formleg viðurkenning þar til bærs stjórnvalds á því að aðili sé hæfur til að vinna tiltekin verkefni varðandi samræmismat svo sem að prófa eiginleika efna, skoða ástand tækja og verksmiðja eða votta stjórnunarkerfi.
Samræmismat er mat á því hvort vara, ferli, kerfi eða aðili uppfylli kröfur. Faggildingarsvið Einkaleyfastofunnar er hinn opinberi faggildingaraðili á Íslandi, en starfsemi á sviði faggildingar heyrir undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
- Lög um faggildingu o.fl. nr. 24/2006.
- Ensk þýðing á lögum um faggildingu
- Reglugerð nr. 649/2015 um góðar starfsvenjur við rannsóknir.
- Reglugerð nr. 1263/2015 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 920/2013 og tilmæli framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 473/2013 frá 24. september 2013 um tilnefningu á og eftirlit með tilkynntum aðilum (sem annast samræmismat fyrir ákveðna vöruflokka sem geta haft mikil áhrif á öryggishagsmuni almennings).
Viðskipti
Síðast uppfært: 3.1.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.