Endurskoðun á ramma peningastefnu
Fjármálastöðugleiki hafi forgang á verðstöðugleika
Helstu tillögur:
- Fjármálastöðugleiki hafi forgang á verðstöðugleika ef þær aðstæður koma upp að ógn skapist gagnvart hinum fyrrnefnda.
- Ábyrgð Seðlabanka Íslands verði aukin. Bankinn beri einn ábyrgð á þjóðhagsvarúð og eindavarúð í stað þess að ábyrgðin skiptist á milli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.
- Verðbólgumarkmið Seðlabankans undanskilji húsnæðisverð.
- Aðstoðarseðlabankastjórar verði tveir, annar með áherslu á fjármálastöðugleika og hinn með áherslu á hefðbundna peningastefnu.
Nefnd um ramma peningastefnu leggur til 11 tillögur um umgjörð varúðartækja, endurbætt verðbólgumarkmið, markvissari beitingu stjórntækja Seðlabankans og ákvörðunarferli peningastefnunnar Í niðurstöðum sínum leggur nefndin áherslu á að sérhver peningastefna hafi sína kosti og galla. Þjóðin hafi búið við þrálátan óstöðugleika í peningamálum þar sem leikreglum hafi ekki verið fylgt. Mikilvægast sé að farið verði eftir þeim leikreglum sem hvert fyrirkomulag krefst á hverjum tíma óháð því hvaða stefna er valin.
Að mati nefndarinnar er ekkert sem bendir til annars en að verðbólgumarkmið geti gengið upp hérlendis með sambærilegum hætti og hefur tekist á Norðurlöndum. Það ætti að styrkja grundvöll peningastefnunnar með markvissari beitingu þjóðhagsvarúðar þannig að Seðlabanki Íslands beri einn ábyrgð á fjármálastöðugleika með sama hætti og bankinn er nú einn í ábyrgð fyrir verðstöðugleika. Nefndin telur hins vegar að myntráð feli í sér óásættanlega áhættu fyrir fjármálastöðugleika og mælir því ekki með þeirri leið.
Nefnd um ramma peningastefnu var skipuð í mars 2017. Í nefndinni áttu sæti þrír hagfræðingar; Dr. Ásgeir Jónsson, formaður, Ásdís Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson. Nefndin fékk eftirtalda hagfræðinga til að veita stjórnvöldum ráðgjöf um peninga- og gengisstefnu til framtíðar:
- Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóra Írlands, og Athanasios Orphanides, prófessor við MIT-háskóla og fyrrum seðlabankastjóra Kýpur – mat á reynslu af verðbólgumarkmiði fyrir Ísland og reifa hugsanlegar umbætur.
- Sebastian Edwards, prófessor við UCLA-háskóla - mat á öðrum valmöguleikum peningastefnu fyrir Ísland en núverandi verðbólgumarkmið.
- Kristin Forbes, prófessor við MIT-háskóla – skoðun á beitingu fjármálastöðugleikatækja.
- Lars Jonung, prófessor við Háskólann í Lundi og Fredrik N. G. Andersson dósent við sama skóla - umfjöllun um íslenska peningastefnu í norrænum samanburði.
Skýrsla nefndar um ramma peningastefnu
Viðaukar:
- Analytica: CPI Formulation and Owner-Occupied Housing User Cost
- Marías Halldór Gestsson: An analysis of CBs inflation forecast errors
- Marías Halldór Gestsson: Efficient monetary policy frontier for Iceland
- Marías Halldór Gestsson: The effects of CBs policy rate on interest rates in Iceland
Skýrslur erlendra sérfræðinga:
- Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóri Írlands, og Athanasios Orphanides, prófessor við MIT-háskóla og fyrrum seðlabankastjóri Kýpur - meta reynsluna af verðbólgumarkmiði fyrir Ísland og reifa hugsanlegar umbætur
- Sebastian Edwards, prófessor við UCLA-háskóla - meta aðra valmöguleika peningastefnu fyrir Ísland en núverandi verðbólgumarkmið
- Kristin Forbes, prófessor við MIT-háskóla - skoða beitingu fjármálastöðugleikatækja
- Lars Jonung, prófessor við Háskólann í Lundi og Fredrik N. G. Andersson dósent við sama skóla - fjalla um íslenska peningastefnu í norrænum samanburði
Kynningarefni á ráðstefnu um framtíð íslenskrar peningastefnu 6. júní 2018
- Framtíð íslenskrar peningastefnu - Ásgeir Jónsson, formaður nefndar um endurskoðun á ramma peningastefnu
- Macroprudential policy after the crisis - Kristin J. Forbes, prófessor við MIT-háskóla
- Iceland’s monetary policy regime - Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóri Írlands
- Monetary policy in Iceland: An evaluation - Sebastian Edwards, prófessor við UCLA háskóla
- Lessons for Iceland from the monetary policy of Sweden - Fredrik N. G. Andersson og Lars Jonung, prófessorar við Háskólann í Lundi
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.