Hoppa yfir valmynd

32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Umfang

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra, forsætisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2021–2023.

Tafla: Heildarúgjöld málasviðsins

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Málaflokkar málefnasviðsins eru mjög ólíkir og því er umfjöllun þessa kafla skipt niður á málaflokka.

Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit ásamt stjórnsýslu heilbrigðismála. Framtíðarsýn mála­flokka um lýðheilsu, forvarnir og eftirlit (32.1) og stjórnsýslu heilbrigðismála (32.3) er sam­eiginleg öllum málefnasviðum heilbrigðisráðuneytisins; að íslensk heilbrigðisþjónusta sé á heimsmælikvarða og að lýðheilsustarf með áherslu á heilsueflingu og forvarnir sé hluti af allri þjónustu, sérstaklega þjónustu heilsugæslunnar. Árangur heilbrigðisþjónustunnar sé metinn með því að mæla gæði þjónustunnar, öryggi hennar, hversu aðgengileg hún er og hvað hún kostar.

Jafnréttis- og mannréttindamál. Framtíðarsýn málaflokks jafnréttis- og mannréttinda­mála (32.2) er að vera í fremstu röð og að hafa sjónarhorn jafnréttis að leiðarljósi þegar opin­berar ákvarðanir eru teknar. Ísland vill vera í fremstu röð þegar kemur að jafnrétti og mann­réttindum. Meginmarkmið málaflokks jafnréttis- og mannréttindamála er að allar manneskjur eigi jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína, óháð kyni, kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu.

Stjórnsýsla félagsmála. Framtíðarsýn málaflokks um stjórnsýslu félagsmála (32.4) er velferð fyrir alla þar sem þjónustan er framúrskarandi, áherslur ráðherra komast í framkvæmd og öll vinna ráðuneytisins er fagleg og skilvirk. Meginmarkmið stjórnsýslu félagsmála er að stuðla að öflugu starfi á sviði félagsmála.

Fjármögnun

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Tafla: Fjárheimildir málasviðsins

Helstu áherslur 2024-2028

EFLING LÝÐHEILSU, FORVARNA OG EFTIRLITS  -  Heilsuefling og forvarnir hluti af allri heilbrigðis-þjónustu. Vandaðri kaup á heilbrigðisþjónustu, efling rafrænnaheilbrigðis¬-upplýsinga og kostnaðargreininga. Efldur viðbúnaður við heilsuvá.

TREYSTA SJÁLFBÆRNI RÍKISFJÁRMÁLA  -  Sjálfbær og hagstæð fjármögnun ríkissjóðs sem stuðlar að stöðugum og skilvirkum skuldabréfamarkaði. Leggja grunn að góðu lánshæfismati og tryggja aðgengi að alþjóðafjármagns- mörkuðum. Bætt áhættustýring og eftirlit með ríkisábyrgðum og nýjar ríkisábyrgðir ekki veittar.

32.1 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit

Verkefni

Heilbrigðisráðuneytið fer með stjórn málaflokksins. Undir málaflokkinn falla embætti landlæknis, Lyfjastofnun, Geislavarnir ríkisins, lýðheilsusjóður og verkefni er varða viðbúnað vegna farsótta. 

Helstu lög sem falla undir málaflokkinn eru lög um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, lyfjalög, nr. 100/2020, lög um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, lög um dýralyf, nr. 14/2022, lög um lækningatæki, nr. 132/2020, og lög um geislavarnir, nr. 44/2002. Í gildi er lýðheilsustefna til ársins 2030, lýðheilsustefna frá 2016 með sérstaka áherslu á börn og ungmenni að 18 ára aldri, heilbrigðisstefna til 2030, geðheilbrigðisstefna til ársins 2030 sem samþykkt var á Alþingi 2022, og stefna um stafræna heilbrigðisþjónustu. Undir lýðheilsustefnu falla ýmsar stefnumótandi áætlanir, s.s. krabbameinsáætlun og heilsuefling aldraðra.

Helstu verkefni málaflokksins eru á sviði lýðheilsu í heilbrigðisþjónustu þar sem megináhersla er á heilsueflingu og forvarnir, auk þess sem verkefni málaflokksins eru geislavarnir, sóttvarnir, viðbúnaður við heilsuvá, eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki og að tryggja greitt aðgengi að lyfjum og lækningatækjum.

Helstu áskoranir

Ein stærsta breyting sem fyrirséð er á samsetningu samfélagsins næstu árin er breytt aldurssamsetning þjóðarinnar og fjölgun í hópi aldraðra. Mikilvægt er að mæta þörfum samfélagsins og vinna markvisst að því að heilsa og velferð fólks sé eins góð og kostur er út æviskeiðið.
Innleiðing lýðheilsustefnu til ársins 2030 verður áskorun. Heilbrigði og velferð snýr ekki aðeins að öflugri heilbrigðisþjónustu heldur því að auka virkni og þátttöku fólks og gera öllum betur kleift að huga að eigin heilsu með því að nýta alla þá þekkingu og öll þau úrræði sem eru til staðar í samfélaginu, innan sem utan heilbrigðisþjónustunnar. Á Íslandi er til staðar ójöfnuður í heilsu eftir landsvæðum og mismunandi þjóðfélagshópum og félagslegri stöðu. Brýnt er að vinna skipulega að því að auka heilsufarslegan jöfnuð í heilsu þar sem enginn er skilinn eftir.
Auka þarf sérstaklega stuðning við vísindarannsóknir á heilbrigðisvísindasviði. Fá verkefni á sviði heilbrigðisvísinda fá úthlutun innan núverandi sjóðakerfa.

Sýklalyfjaónæmi er ein helsta ógn sem steðjar að lýðheilsu, matvælaöryggi og framþróun í heiminum í dag og er ómarkviss sýklalyfjanotkun einn stærsti áhrifaþátturinn. Mótun á heildstæðri aðgerðaáætlun þar að lútandi er margslungið verkefni sem krefst samvinnu fleiri ráðu¬neyta og annarra hagaðila. 

Innleiðing krabbameinsáætlunar til 2030 er viðamikið verkefni og tekur til margra ólíkra þátta. Á vettvangi forvarna og heilsueflingar miðar áætlunin að því að fækka nýgreiningum og draga úr dánartíðni vegna krabbameina sem felst í upplýsingagjöf til almennings um áhættuþætti krabbameina, innleiðingu á lýðgrundaðri skimun samkvæmt skilgreindum gæðastöðlum og góðri þátttöku landans í skimun.
Stríð í Evrópu kallar á aukinn viðbúnað við heilsuvá, s.s. af völdum eiturefna, geislavirkra efna og annarra óvæntra atburða sem valda auknu álagi á stofnanir ríkisins. Þá fylgja fjölgun innflytjenda áskoranir, s.s. við að mæta þjónustuþörf þeirra.

Áskoranir er varða mönnun heilbrigðisþjónustunnar eru viðvarandi og er starfandi landsráð á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu.

Velsældarvísum er ætlað að gefa heildarmynd af hagsæld og lífsgæðum landsmanna yfir tíma. Heilsa er á meðal þeirra þátta sem fólk metur mikilvægasta fyrir lífsgæði. Heilsa er mikilvæg í sjálfri sér en hefur einnig áhrif á aðra mikilvæga þætti, eins og getu til að starfa á vinnumarkaði, afla tekna, afla sér menntunar og taka fullan þátt í samfélaginu að öðru leyti. Velsældarvísar sem fjalla um heilsu eru fjórir en þeir mæla lífslíkur, lífslíkur við góða heilsu, þá sem neita sér um læknisþjónustu og eigið mat á andlegri heilsu. Þeir vísar sem æskilegt væri að horfa til hvað varðar kynja- og jafnréttissjónarmið væru lífslíkur við góða heilsu en sá mælikvarði er enn í þróun sem og mælikvarði um eigið mat á andlegri heilsu en sá vísir hefur ekki verið greindur niður á kyn.

Tækifæri til umbóta

Lýðheilsustarf byggist á þverfaglegu samstarfi og samvinnu í samfélaginu og felur í sér að viðhalda og bæta heilbrigði, líðan og aðstæður þjóðarinnar.

Heilbrigði þjóðar snýst ekki einungis um öfluga heilbrigðisþjónustu heldur að gera fólki betur kleift að huga að eigin heilsu og vellíðan með því að nýta þekkingu og úrræði sem til staðar eru í samfélaginu, bæði innan og utan heilbrigðisþjónustunnar, s.s. í skólum og innan félagsþjónustu og íþróttahreyfinga. 

Mikilvægt er að styrkja áfram verkefni heilsueflandi skóla og heilsueflandi samfélags með því að styðja við íþróttir, æskulýðsstarf, heilsueflingu aldraðra og heilsueflingu á vinnustöðum. Þar nýtast svæðisbundnir lýðheilsuvísar til hvatningar, eftirfylgni og eftirlits.
Horfa þarf á heilbrigði þjóðarinnar í víðu samhengi. Velsældarvísar íslenskra stjórnvalda eru skilgreindur mælikvarði um hagsæld og lífsgæði í landinu og þar með talið líðan fólks. Andlegt heilbrigði er ein af velsældaráherslum ríkisstjórnarinnar. Lýðheilsuvakt embættis landlæknis vaktar helstu áhrifaþætti heilbrigðis og vellíðanar. Markmiðið er að fylgjast með heilsuhegðun og líðan Íslendinga og þróun helstu áhrifaþátta heilbrigðis og hagnýta þær upp¬lýsingar og gögn í aðgerðaáætlunum til eflingar lýðheilsu. Árið 2021 mátu 29,7% fullorðinna andlega heilsu sína slæma eða lélega, þar af 27% karla og 32,4% kvenna.

Áhersla er lögð á að styrkja heilsugæsluna sem leiðandi þátttakanda í heilsueflingu og aðgerðaáætlun um lýðheilsu í samvinnu við aðra hagaðila, s.s. sveitarfélög. 

Heilsueflandi samfélag (HSAM) nefnist verkefni, sem embætti landlæknis leiðir í samstarfi við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila, þar sem heilsa og vellíðan allra íbúa er höfð í fyrirrúmi. Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa.

Unnið er að innleiðingu á skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi ásamt uppbyggingu á nýrri og endurbættri skimanaskrá hjá embætti landlæknis. Sérstök áhersla verður lögð á að efla geðheilbrigðisþjónustu í forvarnaskyni.

Lögð verður áhersla á að samræma gagnasöfn og styrkja umgjörð þeirra. Stuðlað verður að þróun og innleiðingu stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu samhliða því að vísindi og nýsköpun verða efld. Tæknin verður nýtt til að auka aðgengi, gæði, skilvirkni og hagkvæmni heilbrigðisþjónustu. Einnig verður tæknin nýtt til að stuðla að skilvirkari gagnaöflun sem nýtist til ákvarðanatöku. Fjarheilbrigðisþjónusta verður sérstaklega efld.

Áhættuþættir

Heilbrigði er afurð af flóknu samspili einstaklinga og þeirra nánasta umhverfis og margir þættir hafa áhrif á heilsu manna og framvindu sjúkdóma. Áhættuþættir sjúkdóma sem tengjast lífsstíl og umhverfi eru vaxandi vandi og eitt helsta viðfangsefni samfélagsins á sviði lýðheilsu. Þessir þættir eru oft samverkandi og tengdir samfélagslegum þáttum og aðstæðum. Lýðheilsa snertir, auk heilbrigðismála, m.a. félagsmál, umhverfismál og efnahagsmál. Lýðheilsustarf með áherslu á heilsueflingu og forvarnir þarf því að byggja á þverfaglegu samstarfi í samfélaginu. Væntingar um áhrif og árangur af þverfaglegu samstarfi á gæði og samfellu í þjónustu eru miklar. Hins vegar eru margvíslegar áskoranir og hindranir sem þarf að yfirvinna, s.s. ólík fagsvið með ólíkt verklag og vinnutilhögun, ólík upplýsingakerfi sem eru í notkun o.fl.

Markmið og mælikvarðar

Markmið
HM
Mælikvarðar
Staða 2022
Viðmið 2024
Viðmið 2028
Efling heilsu og heilbrigðra lifnaðarhátta.
3.4,
3.5,
3.7,
3.A ,
Hlutfall landsmanna 18 ára og eldri sem nota nikótínpúða daglega.
Karlar 15%
Konur 5%
<5%
<5%
3.4, 3.5, 3.7, 3.A,
Þátttaka í skimun fyrir brjóstakrabbameini (B) og leghálskrabbameini (L).
B 52%*
L 62%*
B>75%
L>75%
B>75%
L>75%
3.4, 3.5, 3.7, 3.A
Hlutfall landsmanna sem búa í heilsueflandi samfélagi/sveitarfélagi.
94,5%
>95%
>96%
Aukið öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna.
3.8
Fjöldi heilbrigðisstofnana sem hefur innleitt Datix-atvikaskráningu.
0
10
14
Aukin gæði og efling rafrænnar heilbrigðis­þjónustu.
3.4, 3.7, 3.8
Hlutfall landsmanna 16 ára og eldri sem notar Heilsuveru í samskiptum við heilbrigðis­þjónustuna.
88,7%
>90%
>90%
3.4, 3.7, 3.8
Hlutfall karla af notendum sem nota Heilsuveru í samskiptum við heilbrigðisþjónustu.
48,9%
50%
50%
3.4, 3.7, 3.8
Traust almennings til heilbrigðisþjónustu.
71%
>70%
>70%







*2022. Mælikvarði um daglega notkun nikótínpúða var tekinn inn í stað notkunar á rafrettum þar sem notkun nikótínpúða hefur aukist umfram notkun rafrettna.

32.2 Jafnréttismál

Verkefni

Forsætisráðuneytið fer með yfirstjórn málaflokksins og hefur samráð við önnur ráðuneyti um verkefni á sviði jafnréttis- og mannréttindamála. Undir málaflokkinn falla aðgerðir hins opinbera á sviði kynjajafnréttis og jafnréttis í víðtækri merkingu. Kynjajafnrétti er áfram for­gangsmál þar sem jafnréttismál verða ávallt í forgrunni ákvarðanatöku. Mannréttindamál heyra nú undir forsætisráðuneytið. Þau lög sem nú falla undir jafnréttismál eru lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, lög um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020, lög nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og lög nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnumarkaði (mismununarlöggjöfin). Þá falla lög um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019, undir stjórnarmálefnið jafnréttismál ásamt málefnum hinsegin fólks.

Forsætisráðuneytið ber ábyrgð á starfsemi Jafnréttissjóðs Íslands en hefur falið Rann­sóknamiðstöð Íslands (Rannís) umsjón og umsýslu sjóðsins.

Jafnréttisstofa heyrir undir yfirstjórn forsætisráðherra og er sú stofnun sem fellur undir málaflokkinn. Hlutverk Jafnréttisstofu er að annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála. Jafnréttisstofa heldur skrá yfir fyrirtæki og stofnanir sem lokið hafa jafnlaunavottun og er skráin birt á vefsíðu stofnunarinnar, jafnretti.is.

Helstu áskoranir

Áskoranir á sviði jafnréttismála eru margþættar og tengjast m.a. viðvarandi launamun kvenna og karla, kynskiptum vinnumarkaði, ójafnri valdastöðu kynjanna, kynbundnu og kyn­ferðislegu ofbeldi og áreitni og réttindum hinsegin fólks.

Tækifæri til umbóta

Í vinnumarkaðsmálum verður unnið gegn kynbundnum launamun og farið sérstaklega í aðgerðir til að draga úr launamun hjá hinu opinbera.

Innleiðing jafnlaunavottunar samkvæmt lögum fer fram í áföngum en með vottuninni er leitast við að draga úr kynbundnum launamun og stuðla að launajafnrétti kynjanna. Opinberir aðilar og stærri fyrirtæki með 250 starfsmenn eða fleiri eiga nú þegar að hafa innleitt jafnlaunavottun, auk annarra smærri aðila. Starfandi er sérstakur aðgerðahópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar sem mun leggja fram tillögur að aðgerðum til að útrýma launamun sem skýrist af kynskiptum vinnumarkaði og kerfisbundnu vanmati á hefðbundnum kvennastörfum.

Í málefnum hinsegin fólks er unnið eftir samþykktri aðgerðaáætlun sem lýsir tilteknum verkefnum og/eða aðgerðum.

Forvarnaáætlun meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025, er fylgt eftir af sérstöku mælaborði.

Vinna er hafin við nýja framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum sem tekur til áranna 2024–2027.

Úthlutað verður úr Jafnréttissjóði annað hvert ár frá árinu 2023. Forsætisráðuneytið fer jafnframt með tvo minni sjóði, annars vegar framkvæmdasjóð jafnréttismála sem veitir árlega styrki, til smærri verkefna ráðuneyta sem fela í sér samstarf milli ráðuneyta og/eða stofnana og hins vegar sjóð sem úthlutar árlega til verkefna sem byggja á aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 en aðgerðaáætlun í þeim málaflokki var samþykkt á Alþingi 2022, sú fyrsta á Íslandi.

Forsætisráðuneytið vinnur að því að koma á laggirnar sjálfstæðri innlendri mannréttinda­stofnun sem uppfyllir svokölluð Parísarviðmið og hefur birt grænbók um mannréttindi til undirbúnings stefnumótun sem er í fullum gangi.

Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og áreitni er bæði orsök og afleiðing kynjamisréttis og stjórnvöld leita allra leiða til að sporna við slíku ofbeldi. Samningur Evrópuráðsins um for­varnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi (Istanbúlsamningurinn) var full­giltur þann 26. apríl 2018 og tók samningurinn gildi í ágúst það sama ár. Ísland hefur skilað skýrslu um innleiðingu ákvæða Istanbúlsamningsins og fengið skýrslu með ábendingum.

Stöðuskýrsla hefur verið birt um framfylgd þingsályktunar um áætlun fyrir árin 2019–2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess og gert er ráð fyrir að skipa starfshóp um nýja aðgerðaáætlun vorið 2023.

Áhættuþættir

Í málaflokknum jafnrétti eru margir þættir sem hafa áhrif á framvindu og stöðu jafnréttis, hvort sem er á Íslandi eða í heiminum öllum. Ýmsir samfélagslegir þættir eins og vaxandi skautun og hatursfull orðræða geta haft áhrif á jafnrétti og mannréttindi, en nú eru báðir málaflokkar vistaðir í forsætisráðuneytinu enda um mikla samlegð að ræða. Mikilvægt er að hafa kynjajafnrétti, mannréttindi og réttindi hinsegin fólks í forgrunni við ákvarðanatöku á næstu árum enda ýmsar áskoranir og hindranir sem blasa við.

Markmið og mælikvarðar

Markmið
HM
Mælikvarðar
Staða
2022
Viðmið 2024
Viðmið 
2028
Launajafnrétti verði náð – kynbundnum launamun verði útrýmt.
5
Fjöldi opinberra stofnana, sjóða og fyrirtækja sem eru að hálfu eða í meirihlutaeigu ríkisins sem fá vottun.
119
(sveitarfélög) 46
123
53
123
53
8
Fjöldi fyrirtækja á markaði sem fá vottun.
278
918
918
 
Minnka kynbundinn (leiðréttan) launamun sem mældur er í launa­rannsóknum Hagstofu Íslands.
4,1%1
3%
2%
Sporna við kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.
5
Hlutfall þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi.*
7,2%2
Lækki
Lækki
5
Hlutfall þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðis­broti.*
2,3%3
Lækki
Lækki
16
Hlutfall brotaþola ofbeldis í nánum samböndum sem tilkynna það til lögreglu.*
21,1%4
25%
35%
16
Hlutfall brotaþola sem tilkynna kynferðisbrot til lögreglu.*
18,5%5
13,5%
20%
Réttindi hinsegin fólks tryggð.
16
Lagaleg staða og réttindi hinsegin fólks á lista the European Region of the International Lesbian, Gay, Bisexual, Trans and Intersex Association (ILGA-Europe).
9. sæti á lista ILGA- Europe
Eitt af efstu átta sætunum á ILGA-Europe
Eitt af efstu sjö
sætunum á ILGA-Europe

[1] Talan 4,1% er byggð á launakönnun Hagstofunnar 2021. Aðrar tölur eru áætlun og stefnt er að launakönnun á tímabilinu.

2–3 Skýrsla ríkislögreglustjóra: Reynsla landsmanna af afbrotum og viðhorf til lögreglu 2022, útgefin í desember 2022. Sjá spurningu undir hlutanum Ofbeldis- og kynferðisbrot. https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2023/02/THolendakonnun-2022_allt_landid_251122.pdf.

4–5 Skýrsla ríkislögreglustjóra: Reynsla landsmanna af afbrotum og viðhorf til lögreglu 2022, útgefin í desember 2022. Sjá spurningu undir hlutanum Tilkynningar til lögreglu. https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2023/02/THolendakonnun-2022_allt_landid_251122.pdf

* Í könnun er spurt um reynslu árið á undan þannig að staðan 2022 er í reynd staðan 2021.

32.3 Stjórnsýsla heilbrigðismála

Verkefni

Undir málaflokkinn heyra m.a. aðalskrifstofa heilbrigðisráðuneytisins, vísindasiðanefnd og Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). SÍ sjá um framkvæmd annarra málaflokka er falla undir mál­efnasvið um sjúkrahúsþjónustu (23), heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa (24), hjúkrunar- og endurhæfingarrými (25), lyf og lækningatæki (26). Þess hefur verið gætt að tilgreina stofnunina við umfjöllun um viðkomandi málaflokka og verður því umfjöllun hér einskorðuð við heilbrigðisráðuneytið. Verkefni ráðuneytisins eru nánar tilgreind í forsetaúrskurði nr. 6/2022.

Undir málaflokkinn heyra einnig stafræn málefni. Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna hjá embætti landlæknis var falið það hlutverk að bera ábyrgð á þróun og innleiðingu upplýsinga­tækni í heilbrigðisþjónustu á öruggan, hagkvæman og skilvirkan hátt. Það felur m.a. í sér að sjá um og viðhalda rafrænni sjúkraskrá, aðgangi almennings að eigin heilsufarsupplýsingum í Heilsuveru og að reka íslenska heilbrigðisnetið Heklu. Endurskoðun á stafrænni stefnu ráðu­neytisins stendur yfir og unnið er að stefnumótun í málaflokknum til framtíðar.

Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er miðað við að Sjúkratryggingar Íslands annist alla samningagerð um kaup á heilbrigðisþjónustu fyrir hönd ríkisins, hvort sem um er að ræða þjónustu opinberra aðila eða einkaaðila. Markmið laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, er að styrkja hlutverk ríkisins sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og að sú þjónusta sé kostnaðar­greind. Samkvæmt lögunum er það hlutverk ráðherra að ákveða hvaða samninga skuli gera um kaup á heilbrigðisþjónustu en Sjúkratryggingar Íslands annast gerð slíkra samninga.

Helstu áskoranir

Helstu áskoranir við stjórnsýslu heilbrigðismála eru fólgnar í því að samþætta og samræma alla stefnumótun og áætlanagerð. Efla þarf samþættingu stefnumótunar, tryggja skilvirka og gagnsæja stjórnsýslu og byggja upp stafrænt umhverfi til að auðvelda aðgengi allra að heil­brigðisþjónustu sem og að efla ákvarðanatöku innan heilbrigðiskerfisins fyrir notendur sem og veitendur. Sem dæmi um þær áskoranir sem ráðuneytið stendur frammi fyrir í stjórnsýslu heilbrigðismála má nefna framtíðarskipulag miðlægra rafrænna heilbrigðislausna.

Auka þarf sérstaklega stuðning við vísindarannsóknir á heilbrigðisvísindasviði. Of fá verkefni á sviði heilbrigðisvísinda fá úthlutun innan núverandi sjóðakerfa. Vísindarannsóknir eru mikilvægar til þess að tryggja gæðaheilbrigðisþjónustu og eru stór hluti af menntun heil­brigðisstarfsmanna. Góð aðstaða og umhverfi til vísindarannsókna er einnig mikilvægur þáttur í því að fá til starfa hæft heilbrigðisstarfsfólk. Í stjórnarsáttmála er lögð áhersla á að styrkja Landspítala og því er mikilvægt að styrkja vísindastarf í heilbrigðisvísindum sem mun efla Landspítala sem háskólasjúkrahús. Í heilbrigðisstefnu er lögð áhersla á að heilbrigðis­vísindasjóður verið stofnaður og veiti styrki til vísindarannsókna á sviði heilbrigðisvísinda. Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í ákvarðanatöku ráðuneytisins er einnig verkefni sem stöðugt er unnið að. Starfsemi ráðuneytisins hefur fjölmarga snertifleti við jafnréttis­sjónarmið og það er áskorun að koma til móts við þau atriði í jafn umfangsmikilli vinnu. Sem dæmi um slíkt verkefni er jafnrétti í bólusetningum kynja, líkt og greint er frá í kaflanum „Markmið og mælikvarðar“ að neðan. Hvað varðar samþættingu kynja- og jafnréttissjónar­miða inn í verkefni og vinnu ráðuneytisins í heild er tekið mið af þeim sjónarmiðum við mat á jafnréttisáhrifum lagasetningar, líkt og venjan er við gerð lagafrumvarpa. Unnt væri að nýta þær leiðbeiningar og þau sjónarmið sem þar eru lögð til grundvallar við töku annarra ákvarð­ana hjá ráðuneytinu, s.s. setningu reglugerða og annarra stefnumarkandi ákvarðana. Myndi það verklag styðja við að kynja- og jafnréttissjónarmið væru höfð til hliðsjónar við töku veiga­mikilla ákvarðana í ráðuneytinu.

Tækifæri til umbóta

Í stjórnarsáttmála er lögð áhersla á tækifærin sem felast í tæknibreytingum til aukinnar velsældar þjóðarinnar. Ný tækni og stafrænar lausnir verði nýtt í auknum mæli til að bæta þjónustu, gæði og hagkvæmni. Í gildi er stafræn stefna fyrir heilbrigðismál sem unnin er með hliðsjón af heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og hefur tengingu við fimm ára aðgerðaáætlun ráðherra þar sem lagður er grunnur að framtíðaráætlunum heilbrigðisráðuneytisins við þróun og notkun á stafrænni tækni til að bæta þjónustu og efla upplýsingar til að efla heilbrigði þjóðarinnar.

Í lok árs 2022 skipaði heilbrigðisráðherra stýrihóp um stafrænar lausnir og heilbrigðis­tæknilausnir við veitingu heilbrigðisþjónustu. Hópnum er ætlað að vera samráðsvettvangur og ráðuneytinu til ráðgjafar við mótun og stefnu framtíðarsýnar í málaflokknum. Meðal stakra verkefna sem hópurinn á að fjalla um er framtíð Heilsuveru og hvernig eigi að koma upp miðlægu ópersónugreinanlegu gagnasafni til ákvarðanatöku. Þá á hópurinn að styðja við stefnu ráðuneytisins í fjárfestingu tækni og hugbúnaðar.

Áhættuþættir

Mikilvægt er að styrkja SÍ sem kaupanda og kostnaðargreinanda heilbrigðisþjónustu til að stuðla að hagkvæmum og skilvirkum samningum um heilbrigðisþjónustu innan ásættanlegra tímamarka. Samningaleysi um tiltekna heilbrigðisþjónustu fer þvert gegn markmiðum laga um sjúkratryggingar og mikilvægt að koma í veg fyrir að það ástand skapist. Ráðuneytið er einnig meðvitað um að málsmeðferðartími embættis landlæknis í málum þar sem kvartað er undan meintum mistökum eða vanrækslu heilbrigðisstarfsmanna er langur.

Markmið og mælikvarðar

Markmið
 
HM
Mælikvarðar
Staða 2022
Viðmið 2024
Viðmið 2028
Skilvirk stjórnsýsla heilbrigðismála.
 
3
Meðalafgreiðslutími
(í dögum) kærumála
að lokinni gagnaöflun.
70
90
90
 
3
Fjöldi mögulegra myndstrauma.
2
200
200
Jafnrétti í bólusetningum kynja.
 
3
12 ára drengir bólusettir gegn HPV-veiru og kynfæravörtum.
5%
80%
90%

Markmið 2 er nýtt og er hér um að ræða jafnréttismarkmið. Hingað til hafa einungis stúlkur átt kost á bólusetningu við HPV-veiru. Um er að ræða nýtt bóluefni sem veitir víðtækari vörn gegn veirunni, auk þess sem það veitir vörn gegn kynfæravörtum.

32.4 Stjórnsýsla félagsmála

Verkefni

Undir málaflokkinn fellur rekstur aðalskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, úrskurðarnefnd velferðarmála og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála sem tók til starfa 1. janúar 2022 samkvæmt lögum nr. 88/2021. Undir málaflokkinn fellur einnig rekstur Tryggingastofnunar ríkisins. Umfjöllun í fjármálaáætlun einskorðast við verkefni aðalskrifstofu ráðuneytisins.

Helstu áskoranir

Með forsetaúrskurði nr. 6/2022, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands, var gerð talsverð breyting á verkefnum félagsmálaráðuneytisins, auk þess sem nafni ráðuneytisins var breytt til að endurspegla áherslur nýrrar ríkisstjórnar. Heitir það nú félags- og vinnumarkaðsráðuneyti.

Áskorun hefur verið að byggja upp ráðuneyti með breyttar áherslur og tryggja áfram sérfræðiþekkingu starfsfólks sem og fjölbreyttan mannauð sem endurspeglar kynja- og jafnréttissjónarmið í víðum skilningi. Í ráðuneytinu eru jafnframt stórir og síkvikir mála­flokkar sem sumir hafa vaxið hratt á skömmum tíma, s.s. er varðar þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Mörg verkefni í stjórnarsáttmála heyra enn fremur undir málefnasvið ráðuneytisins. Áskorun er fólgin í því að tryggja að áherslur sem ganga þvert á málaflokka, t.a.m. er varða velsældaráherslur og kynja- og jafnréttissjónarmið, séu samþættar í verkefni ráðuneytisins.

Tækifæri til umbóta

Nýjum áherslum fylgja tækifæri til stefnumótunar svo bæta megi þjónustu við almenning skv. velsældaráherslum. Viðamikil stefnumótun á sér stað í mörgum málaflokkum innan ráðu­neytisins, m.a. er varðar heildarendurskoðun örorkulífeyriskerfisins, stefnumótun í málefnum innflytjenda og flóttafólks, endurskoðun framhaldsfræðslu, heildarendurskoðun í málefnum eldra fólks og gerð landsáætlunar um innleiðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Horft verður til ákvæða stefnumótunar í lögum um opinber fjármál við úrlausn verkefnanna, auk þess að undirstrika mikilvægi þess að áherslur sem ganga þvert á málaflokka skili sér inn í þau.

Framangreind verkefni, auk þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á starfsemi ráðu­neytisins, fela í sér áskoranir en einnig fjölmörg tækifæri til að móta áfram skilvirka og faglega stjórnsýslu fyrir öll. Frá síðustu fjármálaáætlun hefur nýtt skipurit félags- og vinnumarkaðs­ráðuneytis litið dagsins ljós. Auk hefðbundinna skrifstofa eru starfrækt fjögur fagteymi innan ráðuneytisins og liggja þau þvert á skrifstofurnar: Teymi um stefnumótun, nýsköpun, rann­sóknir og eftirfylgni; teymi um virkni; teymi um fjárflæði, samninga og kostnaðarendurmat; og teymi um samspil lífeyris og velferðarþjónustu.

Í ráðuneytinu er enn fremur stöðug áhersla á að bæta verklag og þróa frekar innri starfsemi í takt við ákvæði laga um opinber fjármál þar sem áherslan er á stefnumótun og mótun árangursmælikvarða.

Áhættuþættir

Í ráðuneytinu eru verkefni sem krefjast samvinnu þvert á ráðuneyti Stjórnarráðsins, s.s. er varðar þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, heildarendurskoðun örorkulífeyris­kerfsins og heildarendurskoðun í málefnum eldra fólks. Stór og síkvik verkefni sem krefjast umfangsmikillar samvinnu þvert á stjórnsýsluna fela ótvírætt í sér áskoranir, m.a. hvað varðar mannafla. Ófyrirsjáanleiki er óhjákvæmilegur innan málaflokksins og málefni mis­umfangs­mikil á hverjum tíma. Má þar nefna málefni vinnumarkaðar. Slíkur ófyrirsjáanleiki felur bæði í sér áskoranir varðandi mannauð og þekkingu.

Markmið og mælikvarðar

Markmið
HM
Mælikvarðar
Staða 2022
Viðmið
2024
Viðmið
2028
Skilvirkari stjórnsýsla félagsmála.
 
Heildaránægja með þjónustu stofnana FRN sem taka þátt í þjónustukönnun ríkisstofnana.


3,4
3,6
3,8
 
Stjórnendafræðsla fyrir forstöðumenn stofnana og yfirstjórn FRN (fjöldi fræðsludaga).
0
6
6

Ekki voru mælikvarðar við stjórnsýslu félagsmála í fjármálaáætlun 2023–2027, m.a. vegna uppskiptingar málaflokka innan stjórnkerfisins. Mótaðir hafa verið nýir mælikvarðar svo fylgjast megi með árangri af aðgerðum til að styðja við markmið um skilvirkari stjórnsýslu félagsmála.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta