Olíugjald
Olíugjald, þ.e. vörugjald af gas-, dísil- og steinolíu sem flokkast í tiltekin tollskrárnúmer og nothæf er sem eldsneyti á ökutæki, er lagt á aðila sem framleiða og stunda aðvinnslu olíu, þá sem flytja inn olíu til endursölu eða eigin nota og þá sem kaupa olíu innanlands til endursölu.
Tollgæslustjóri annast álagningu olíugjalds af gjaldskyldri olíu sem flutt er til landsins en ríkisskattstjóri annast álagningu vegna sölu eða eigin nota á olíu.
Olíugjald nemur tiltekinni fjárhæð á hvern lítra af olíu. Lituð olía er undanþegin olíugjaldi en slíka olíu er aðeins heimilt að nota á tiltekin skip og báta, til húshitunar og hitunar lauga, í iðnaði og á vinnuvélar, á dráttarvélar, til raforkuframleiðslu, á tiltekin sérstaklega skráð ökutæki, á björgunarsveitabifreiðar o.fl.
Sjá einnig:
Skattar og þjónustugjöld einstaklinga
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.