Hoppa yfir valmynd

Tekjuskattur

Til skattskyldra tekna teljast með þeim undantekningum og takmörkunum, er í lögum greinir, hvers konar gæði, arður, laun og hagnaður sem skattaðila hlotnast og metin verða til peningaverðs og skiptir ekki máli hvaðan þær stafa eða í hvaða formi þær eru.

Skyldu til að greiða tekjuskatt og útsvar bera allir þeir sem afla tekna á Íslandi. Þeir sem búsettir eru hér á landi bera fulla skattskyldu af tekjum sínum, en þeir sem búsettir eru erlendis og hafa héðan tekjur bera takmarkaða skattskyldu sem nær eingöngu til tekna sem þeir afla hér á landi.

Af tekjum einstaklinga utan rekstrar, aðrar en fjármagnstekjur, reiknast m.a. tekjuskattur sem rennur til ríkisins og útsvar sem rennur til sveitarfélaga. Hundraðshluti útsvars er ákvarðaður af sveitarfélögum. Á álagningarseðli kemur fram sveitarfélag og hundraðshluti útsvars. Frá reiknuðum tekjuskatti og útsvari dregst persónuafsláttur. Tekjuskattur einstaklinga og útsvar er að miklu leyti innheimt strax við útborgun launa, þ.e. í staðgreiðslu, og er launagreiðandi ábyrgur fyrir að standa skil á þeim sköttum sem hann hefur þannig dregið af launum. 

Tekjuskattur einstaklinga er gerður upp við álagningu sem fram fer í lok júlí ár hvert vegna tekna ársins á undan.

Hlutföll og fjárhæðir

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 15.8.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta