NPA miðstöðin fær fjárframlag til kynningar- og fræðsluverkefnis um notendastýrða persónulega aðstoð
Ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samþykkti í júlí sl. að tillögu verkefnisstjórnar NPA framlag til NPA miðstöðvarinnar til þess að standa fyrir kynningar- og fræðsluverkefni um notendastýrða persónulega aðstoð. Eins og flestum er kunnugt þá er gert ráð fyrir því að tilraunaverkefni um framkvæmd NPA fari af stað víðsvegar um landið á næstu vikum og mánuðum. Þessu kynningar- og fræðsluverkefni er sérstaklega beint til þeirra sem kynnu að að hafa áhuga á að nýta sér þetta úrræði. Jafnframt er gert ráð fyrir því að starfsmenn sveitarfélaga og pólitískir fulltrúar geti haft not af þessu kynningar- og fræðsluverkefni. Fjárframlag Jöfnunarsjóðs sem veitt er NPA miðstöðinni getur orðið allt að 9.7 m.kr.
NPA miðstöðin hefur nú sett sig í samband við fulltrúa þjónustusvæða í málefnum fatlaðs fólks og sveitarfélaga þar sem leitað er heppilegra dagsetninga til kynningar. Þeir sem áhuga hafa á að vera viðstaddir slíka kynningu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við fulltrúa félagsþjónustu í því sveitarfélagi sem viðkomandi býr í.
Meðfylgjandi er dagskrá og bréf sem sent hefur verið til þjónustusvæða í málefnum fatlaðs fólks.
- Dagskrá
- Bréf sem sent hefur verið til þjónustusvæða í málefnum fatlaðs fólks
Fræðsla og kynning á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) - Fyrirlesarar