Fræðslufundur í Mosfellsbæ um NPA og sjálfstætt líf
Þriðjudaginn 13. nóvember mun NPA miðstöðin, samvinnufélag fatlaðs fólks, í samstarfi við Velferðarráðuneytið, koma með fræðslu í Mosfellsbæ um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð.
Fræðslan er ætluð fötluðu fólki og aðstandendum, fagfólki og sveitarstjórnarfólki og fer hún fram í Bókasafni Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2.