Fyrirlestur á Akureyri 27. apríl nk. "Danish Emergency Management - now and then"
Rasmus Dahlberg, sérfræðingur hjá DEMA (Danish Emergency Management Agency) og hjá COPE (Copenhagen Center for Disaster Research, Copenhagen University) mun halda fyrirlestur á sjúkrahúsinu á Akureyri þann 27. apríl nk. Í fyrirlestrinum mun Rasmus Dahlberg fjalla um danska almannavarnarkerfið og ræða nokkur helstu stærri tilvik sem það hefur tekist á við. Rasmus mun einnig segja frá rannsóknum sínum og þátttöku í norrænum rannsóknarverkefnum, þar með talið í NORDRESS þar sem hann tekur þátt í rannsókninni Arctic offshore challenges.