Upptaka frá fyrirlestri Rasmus Dahlberg
Rasmus Dahlberg, sérfræðingur hjá DEMA (Danish Emergency Management Agency) og hjá COPE (Copenhagen Center for Disaster Research, Copenhagen University) hélt fyrirlestur á sjúkrahúsinu á Akureyri þann 27. apríl sl. Í fyrirlestrinum fjallaði Rasmus um danska almannavarnarkerfið og ræddi nokkur helstu stærri tilvik sem það hefur tekist á við. Rasmus sagði einnig frá rannsóknum sínum og þátttöku í norrænum rannsóknarverkefnum, þar með talið í NORDRESS þar sem hann tekur þátt í rannsókninni Arctic offshore challenges.