Styrkir á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytis
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir árlega eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki á haustin. Ráðherra veitir þá síðan á nýju ári, að undangenginni tillögu úthlutunarnefndar.
Með breyttum úthlutunarreglum um ofangreinda styrki á málefnasviði félags- og vinnumarkaðsráðuneytis til félagasamtaka er nú hægt að sækja um tvenns konar styrki:
1) Verkefnastyrkir. Verkefnastyrkir eru veittir til afmarkaðra verkefna og alla jafna ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Í þeim tilvikum þar sem verktími er lengur en eitt ár er heimilt að veita árlegan styrk til allt að þriggja ára, með fyrirvara um fjárveitingar á fjárlögum hverju sinni. Ekki eru veittir styrkir til sömu verkefna og hljóta styrk á fjárlögum eða verkefna sem falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga við það.
2) Rekstrarstyrkir. Styrkir eru veittir til reksturs félagasamtaka sem hafa verið starfandi í að lágmarki þrjú ár. Rekstrarstyrkir geta verið veittir til tveggja ára í senn.
Sótt er um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins.
Ath. undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið heyrir einnig þróunarsjóður innflytjendamála sem sömuleiðis veitir styrki, auk þess sem undir ráðuneytið falla styrkveitingar til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála. Auglýst verður eftir styrkjum til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála í byrjun október 2024.
Yfirlit yfir styrkþega
- Frétt um styrkþega 2023
- Frétt um styrkþega 2022
- Frétt um styrkþega 2021
- Frétt um styrkþega 2020
- Frétt um styrkþega 2019
Eldri fréttir má finna með því að leita á
fréttavef Stjórnarráðsins.
Félags- og fjölskyldumál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.