Hoppa yfir valmynd
6. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Kannanir vegna námsgagnakostnaðar á framhaldsskólastigi og fleira

Menntun er undirstaða lífskjara. Velferðarvaktin hefur gert kannanir og lagt fram tillögur með það að markmiði að tryggja sem flestum börnum farsæla skólagöngu og sporna gegn brotthvarfi sbr. fréttir sem sjá má hér á vefsvæðinu.

Í haust og lok árs 2019 hefur Velferðarvaktin unnið að tveimur nýjum könnunum um námsgagnakostnað og fleiri atriðum sem geta tengst brotthvarfi úr námi. Kannanirnar eru unnar með rannsóknarfyrirtækinu Maskínu.

Önnur könnunin fólst í vefumræðuborði þar sem leitað var til ríflega 100 ungmenna sem voru að hefja nám í framhaldsskóla í haust. Um 86 svöruðu spurningum og tóku þátt í umræðunum. Hin könnunin fólst í spurningakönnun þar sem leitað var til 31 skólameistara í framhaldsskólum, en 30 sendu inn svör. Niðurstöður beggja þessara kannanna verða kynntar í janúar 2020.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta