Hoppa yfir valmynd
25.02.2009 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fjarskiptasjóður og Síminn undirrita samning um háhraðanet til allra landsmanna

Fjarskiptasjóður og Síminn undirrituðu í dag samning um uppbyggingu háhraðanets um allt land. Með samningum er öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar.

Skrifað undir samning um háhraðanettengingar
Skrifað undir samning um háhraðanettengingar

Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi 1. mars 2009. Samningsfjárhæðin er 606 milljónir króna og í samningnum felst að Fjarskiptasjóður veitir Símanum fjárstyrk til uppbyggingar á háhraðanetkerfi og háhraðanetþjónustu sem nær til staða sem ekki hafa aðgang að slíkri þjónustu. Þjónustan mun ná til heimila þar sem einn eða fleiri einstaklingar eru með lögheimili og hafa þar jafnframt heilsársbúsetu og einnig til húsnæðis þar sem lögaðili er með atvinnustarfsemi allt árið.

Kristján L. Möller, samgönguráðherra: „Það er mjög mikilvægt að geta nú staðfest síðasta áfangann í þeirri miklu uppbyggingu sem fram hefur farið á fjarskiptasviðinu síðustu árin í samræmi við fjarskiptaáætlun. Háhraðanetsamband er löngu orðinn eðlilegur og sjálfsagður þáttur í daglegu lífi okkar og því nauðsynlegt að allir landsmenn sitji við sama borð í þeim efnum. Nú verður gengið rösklega til verks og byrjað á Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austfjörðum og í síðari áfanga verksins verður farið í aðra landshluta. Það er ánægjulegt að geta gengið frá þessum samningi og vil ég þakka öllum sem komið hafa við sögu.“

Vinna við uppbygginguna hefst strax og geta fyrstu heimilin nýtt sér netþjónustu Símans við lok marsmánaðar. Áætlað er að tengingu þessara tæplega 1800 staða ljúki við lok næsta árs. Þau heimili sem þiggja þjónustuna munu hafa kost á að minnsta kosti 2Mb/s tengingu en það er margfaldur hraði miðað við þann hraða sem nú er í boði á þessum stöðum. Samhliða þessari uppbyggingu mun Síminn byggja upp 3G farsímasamband á þessum svæðum.

Upphaflegt umfang verkefnisins var um 1.100 staðir. Umfangið hefur aukist um tæplega 700 staði þar sem markaðsáform nokkurra aðila gengu ekki eftir. Auglýst var eftir áformum markaðsaðila á þessum viðbótarstöðum sem reyndust engin vera. Samningurinn nær því í dag til allra staða á landinu sem, að uppfylltum búsetuskilyrðum, eiga ekki kost á háhraðanettengingu á markaðslegum forsendum.

Með þessum samningi hafa samgönguráðuneytið og fjarskiptasjóður komið í framkvæmd öllum helstu verkefnum gildandi fjarskiptaáætlunar 2005-2010 sem eru:

1.   Að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðanettengingum.

2.         GSM-farsímaþjónusta verði aðgengileg á þjóðvegi 1, öðrum helstu stofnvegum og á helstu ferðamannastöðum.

3.         Að dreifing sjónvarpsdagskrár Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða verði stafræn um gervihnött.

 

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans: „Ég fagna því að þessi samningur skuli verða að veruleika núna þrátt fyrir erfiðleika í þjóðarbúinu. Háhraðatenging við internetið er orðinn hluti af þeim lífsgæðum sem íbúar í nútímaþjóðfélagi gera kröfu um. Með þessum samningi stígur fjarskiptasjóður stórt skref í að veita öllum landsmönnum þessi lífsgæði. Samhliða þessari uppbyggingu mun Síminn halda áfram þriðju kynslóðar uppbyggingu sinni. Verkefnið er umfangsmikið en hér er m.a. um að ræða um 100 senda sem settir verða upp á 18 mánuðum.“


  •  Skrifað undir samning um háhraðanettengingar      
    Skrifað undir samninginn. Frá vinstri: Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, Kristján L. Möller samgönguráðherra og Gunnar Svavarsson, formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs.      

     Samningurinn handsalaður eftir undirritun      

    Samningurinn var líka handsalaður eftir undirritun. Frá vinstri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgönguráðuneytis, Sævar Freyr Þráinsson, forsjtóri Símans, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Gunnar Svavarsson, formaður stjórnar Fjarskiptasjóðs, og Júlíus Sæberg Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa.

         

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta