Leggja til aðgerðir til að jafna stöðu kynja í sveitarstjórnum
Sigrún Jónsdóttir, formaður hópsins, afhenti Kristjáni L. Möller greinargerð hópsins nýverið og sagði hann næsta skref að fara yfir tillögurnar og hrinda í framkvæmd þeim ábendingum sem unnt þykir.
Í greinargerð hópsins eru settar fram tillögur um mögulegar leiðir og aðgerðir af hálfu stjórnvalda sem verða mættu til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum. Fjallað er um nýlegar aðgerðir í Danmörku og Noregi. Þá er fjallað um kynjakvóta, einkynja sveitarstjórnir og áhrif persónukjörs. Einnig er kafli í skýrslunni um starfsumhverfi sveitarstjórnarfulltrúa og settar eru fram hugmyndir um mögulegar aðgerðir af hálfu stjórnmálaflokka. Í viðauka eru tölfræðilegar upplýsingar um hlutföll karla og kvenna í sveitarstjórnum.
Meðal tillagna starfshópsins um mögulegar aðgerðir er að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið skipuleggi kynningarstarf og hvatningarátak fyrir því að konur til jafns við karla taki þátt í störfum sveitarstjórna, að ráðuneytið boði til samráðs með forystufólki úr stjórnmálaflokkunum til að hvetja til jafnræðis meðal kynjanna í efstu sætum framboðslista og að haldin verði námskeið á vegum ráðuneytisins fyrir konur um þátttöku í sveitarstjórnarstarfi.
Þá er bent á þann möguleika að ekki verði heimilt að setja fram framboðslista nema jafnt hlutfall sé milli kynja. Einnig er bent á að taka þurfi tillit til fjölskyldufólks við skipulagningu funda og að kynna þurfi starf í sveitarstjórn með jákvæðum fólki, til dæmis fyrir ungu fólki í sveitarfélögum. Loks er lagt til að ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga skipi starfshóp til að kanna starfsumhverfi og starfskjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn.
Í starfshópnum voru auk Sigrúnar Jónsdóttur Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, fulltrúi Frjálslynda flokksins, Herdís Þórðardóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, og Unnur Brá Kolbeinsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Þá skipaði ráðherra einnig í starfshópinn Halldór V. Kristjánsson, sérfræðing hjá Jöfnunarsjóðis sveitarfélaga. Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur á skrifstofu sveitarstjórnarmála, starfaði einnig með hópnum. Félags- og tryggingamálaráðuneytið tilnefndi Inga Val Jóhannsson deildarstjóra sem tengilið og Jafnréttisstofa tilnefndi Bergljótu Þrastardóttur sérfræðing sem tengilið sinn.
Greinargerð starfshópsins hefur verið send sveitarstjórnum og ráðherrum dómsmála og félagsmála.