Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2010
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. janúar síðastliðinn um áætlaðar úthlutanir framlaga árið 2010.
Áætluð útgjaldajöfnunarframlög
Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2010, sbr. 13. gr. reglugerðar nr. 113/2003, nemi 4.000 milljónum króna.
Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega, en 10% er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfé sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember.
Áætluð framlög vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum
Á árinu 2010 áætla sveitarfélögin að greiðslur þeirra á almennum húsaleigubótum nemi samtals um 3.876 milljónum króna. Áætlað er að um 25,6% hækkun verði að ræða á greiðslum bótanna frá fyrra ári.
Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um að áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu almennra húsaleigubóta á árinu 2010 nemi 51,5%.
Áætlanir sveitarfélaga um greiðslur á sérstökum húsaleigubótum á árinu 2010 nema samtals um 444 milljónum króna. Áætlað er að um 24% hækkun verði á greiðslum bótanna frá fyrra ári.
Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um að áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum nemi 60% árið 2010, sbr. samkomulag ríkis og sveitarfélaga um húsaleigubætur er tók gildi 1. apríl 2008.