Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. febrúar um áætlaða úthlutun framlaga til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga á árinu 2010 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 með síðari breytingum.
Áætluð heildarúthlutun framlaganna í ár nemur 2.574,5 milljónum króna og greiðir Jöfnunarsjóður 60% framlaganna fyrirfram mánuðina febrúar til júní.
Uppgjör framlaganna fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september á grundvelli upplýsinga frá Fasteignaská Íslands.