Hoppa yfir valmynd
25.01.2011 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2011 vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum

Á árinu 2011 áætla sveitarfélögin að heildargreiðslur þeirra á almennum húsaleigubótum nemi um 3.679 milljónum króna. Áætlað er að um 7,4% hækkun verði að ræða á greiðslum bótanna frá fyrra ári.

Innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um að áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum nemi 51,5% á árinu 2011.

Áætlanir sveitarfélaga um greiðslur á sérstökum húsaleigubótum á árinu 2011 nema samtals  um 1.030  milljónum króna. Áætlað er að um 6,1% hækkun  verði að ræða á greiðslum bótanna  frá fyrra ári.

Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um að áætlað greiðsluhlutfall Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum nemi 60% á árinu 2011, sbr. samkomulag ríkis og sveitarfélaga um húsaleigubætur er tók gildi 1. apríl 2008.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta