Rætt um sóknaráætlanir landshluta og nýjar leiðir í samstarfi ráðuneyta og sveitarfélaga
Fulltrúar landshlutasamtaka sveitarfélaga, ráðuneyta og fleiri hittust á samráðsfundi síðastliðinn föstudag og fjölluðu um framkvæmd sóknaráætlana landshluta og tengsl þeirra við önnur verkefni sem eru hluti af áætluninni Ísland 20/20. Er þetta í annað sinn sem þessi hópur hittist.
Auk fulltrúa landshlutasamtakanna sátu fundinn sérfræðingar frá innanríkisráðuneyti, iðnaðarráðuneyti, fjármálaráðuneyti og forsætisráðuneyti, einnig sérfræðingar frá Byggðastofnun og verkefnisstjóri starfshóps innanríkisráðuneytisins um eflingu sveitarfélaga.
Á samráðsfundinum eru menn að skiptast á skoðunum og þreifa sig áfram með nýjar leiðir í hvers konar samstarfi og tengslum milli áætlunarinnar Ísland 20/20 og annarra verkefna sem fela meðal annars í sér nýsköpun í atvinnulífinu, breytingum í Stjórnarráðinu, eflingu sveitarfélaga, sóknaráætlanir landshluta og fleira. Rætt er um hvernig færa megi sveitarfélögunum meira vald og áhrif, hvernig auka má samstarf ráðuneyta á sviði áætlunargerðar, hvernig endurskipuleggja megi stoðkerfi hins opinbera og hvernig skuli standa að aðkomu sveitarfélaga að fjárfestingaráætlunum ríkisins
Á fundinum voru málin reifuð frá ýmsum hliðum og ráðgert er að halda fleiri fundi á næstunni með fulltrúum hinna ýmsu aðila sem koma að ofangreindum verkefnum.