Enn hægt að skrá þátttöku á hádegisfund á morgun um beint lýðræði
Enn er unnt að skrá sig til þátttöku á hádegisfund á morgun, þriðjudaginn 12. mars, um beint lýðræði á vegum innanríkisráðuneytisins og fleiri aðila. Fundurinn fer fram í Iðnó í Reykjavík og stendur frá klukkan 12 til 13.30. Skráning fer fram á netfangið [email protected].
Fundinum stýrir Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi í Vogum. Aðalerindi fundarins flytur Bruno Kaufmann, formaður samtakanna Initiative and Referendum Institute Europe og formaður lýðræðisráðs og kjörstjórnar í Falun, Svíþjóð. Einnig flytja erindi Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Dagskrá:
Klukkan 12.00:
Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi í Vogum og fundarstjóri: Dagskrá kynnt
Klukkan 12.05:
Bruno Kaufmann, formaður samtakanna Initiative and Referendum Institute Europe og formaður lýðræðisráðs og kjörstjórnar í Falun, Svíþjóð: Democracy City - towards a local supportive infrastructure for participative democracy.
Klukkan 12.25:
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga: Ríki og sveitarfélög. Samstarf á jafnréttisgrundvelli?
Klukkan 12.35:
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra: Búið í haginn fyrir fyrir lýðræðið.
Klukkan 12.45-13.30:
Fyrirspurnir og almennar umræður.