Hoppa yfir valmynd
13.11.2013 Innviðaráðuneytið

Víðtækt endurmat vegna yfirfærslu málefna fatlaðs fólks

Vinna við endurmat á yfirfærslu málefna fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga hefur staðið yfir undanfarna mánuði en niðurstaða úr endurmatinu á að liggja fyrir næsta sumar.  Endurmatið byggist bæði á faglegum og fjárhagslegum þáttum og er í samræmi við ákvæði í samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá því í nóvember 2010 en sveitarfélögin yfirtóku þjónustu við fatlað fólk frá ársbyrjun 2011.

Í samkomulaginu um yfirfærsluna var gengið út frá því að rekstrarárin 2011-2013 yrðu reynslutími þar sem fengið yrði mat á faglegum og fjárhagslegum þáttum verkefnisins og á forsendum endurmats yrði gengið frá endanlegu samkomulagi um ákvörðun útsvarsstofns og heildarfjármögnun þjónustunnar. Upphaflega var gert ráð fyrir að hægt yrði að ná niðurstöðu um hlutfall útsvarsprósentunnar fyrir fjárlög komandi árs 2014 en samkomulag liggur nú fyrir milli aðila um að sú ákvörðun verði tekin við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2015 þar sem vinna við endurmatið er viðameiri og tímafrekari en gert var ráð fyrir í upphafi.

Sérstök verkefnisstjórn heldur utan um endurmatið og eiga sæti í stjórninni fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, velferðar-, innanríkis- og fjármálaráðuneyti. Meðal þess sem unnið er að við endurmatið er heildarsamræming á rekstraruppgjörum allra sveitarfélaga og þjónustusvæða vegna málaflokks fatlaðra. Niðurstöður fyrir rekstrarárið 2012 munu liggja fyrir á næstu vikum og fyrir yfirstandandi ár á komandi vori. Einnig er verið að gera úttekt á þróun launakostnaðar í málaflokknum frá ársbyrjun 2011.

Fyrir skömmu var sendur til allra þjónustusvæða ítarlegur spurningarlisti um þróun og framkvæmd verkefnisins frá yfirtökunni. Meðal annars á að skoða sérstaklega væntanlegri þörf og þróun í búsetumálum en það er einn kostnaðarsamasti hluti þjónustunnar. Umsjón með þessari könnun er hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en undirbúningur var í góðu samráði við þjónustusvæðin og ráðuneytin. Velferðarráðuneytið í samvinnu við Hagstofuna hefur það hlutverk að taka saman ítarlegar upplýsingar um sundurgreinda þjónustu við fatlað fólk af hálfu sveitarfélaganna frá yfirfærslunni 2011. Á komandi ári verður gerð sérstök stöðuúttekt á faglegum þáttum þjónustunnar til samanburðar við þá úttekt sem unnin var þegar yfirfærslan átti sér stað.

Með þessum víðtæku gögnum og upplýsingaöflun er stefnt að því að ná utan um stöðu fjárhagslegra og faglegra þátta á þeim tíma sem sveitarfélögin hafa annast þjónustu við fatlað fólk og meta þannig heildarfjárþörf og framtíðarþróun, sem forsendu fyrir samkomulagi um trygga fjármögnun til málaflokksins á komandi árum.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta