Hoppa yfir valmynd
08.01.2015 Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingar á vatnsveitulögum til umsagnar

Innanríkisráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að lagafrumvarpi um breytingar á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004. Unnt er að koma umsögnum um frumvarpsdrögin á netfangið [email protected] til og með 30. janúar næstkomandi.

Meginmarkmið frumvarpsins er að skýra og treysta grundvöll þeirrar álagningar vatnsgjalds sem þegar fer fram á vegum vatnsveitna sveitarfélaga fyrir þá almannaþjónustu sem þær veita. Sú þjónusta felst fyrst og fremst í þeim aðgangi að neysluvatni sem eigendur fasteigna á veitusvæðum eiga kost á með tengingu við veiturnar, óháð því hvernig einstakir fasteignaeigendur haga þeirri nýtingu innan sinnar fasteignar. Þá er það einnig mikið öryggismál fyrir alla fasteignaeigendur að eiga tryggan aðgang að vatni til slökkvistarfs, óháð vatnsnýtingu þeirra að öðru leyti. Það er hins vegar ekki tilgangur frumvarpsins að útvíkka eða auka gjaldtökuna frá því sem verið hefur.

Frumvarpsdrögin eru samin í innanríkisráðuneytinu í samstarfi við umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samorku og Orkuveitu Reykjavíkur. Samhliða hefur verið unnið að drögum að frumvarpi til sambærilegra breytinga á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta