Hoppa yfir valmynd
20.09.2017 Innviðaráðuneytið

Skýrsla um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga

Skýrsla um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga hefur verið afhent samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Skýrsluna vann verkefnisstjórn sem þáverandi innanríkisráðherra skipaði í lok árs 2015. Var hlutverk hennar að greina sveitarstjórnarstigið og finna tækifæri og leiðir til að styrkja það.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, ráðgjafi hjá Ráðrík ehf. og fyrrverandi sveitarstjóri, fór fyrir verkefnisstjórninni en ásamt henni sátu í henni Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, skipuð af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála Háskóla Íslands, skipuð af innanríkisráðherra og Sigurður H. Helgason, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, skipaður af fjármála- og efnahagsráðherra. Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu, var starfsmaður verkefnisstjórnar. Þá aðstoðaði Tinna Dahl Christiansen, sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verkefnisstjórnina við afmörkuð verkefni.

Verkefnisstjórnin fór yfir sögu íslenska sveitarstjórnarstigsins, kynnti sér reynslu Norðurlandanna á fækkun sveitarfélaga undanfarin misseri og átti víðtækt samráð við sveitarstjórnarfulltrúa og íbúa sveitarfélaga. Hélt verkefnisstjórnin alls 12 fundi auk funda með bakhópi og ellefu funda víða um land. Einnig leitaði verkefnisstjórnin til einstaklinga með ýmsa reynslu og þekkingu á sveitarstjórnarstiginu og er gerð grein fyrir þessum fundum í fylgiskjölum skýrslunnar.

Helstu niðurstöður eru meðal annars:

  • Stjórnvöld marki skýra stefnu fyrir sveitarfélög til allt að 20 ára.
  • Starfsemi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði endurskoðuð og gerð krafa um að hann styðji við langtíma stefnumótun.
  • Stjórnvöld taki markvissari þátt í að styrkja sveitarstjórnarstigið.
  • Íbúar sveitarfélaga kalla eftir góðri þjónustu og mannlífi en eru minna uppteknir af því hver veitir þjónustuna.

Þá setur verkefnisstjórnin fram tillögur og segir í skýrslunni að til þess að ná því markmiði að efla sveitarstjórnarstigið þurfi sveitarfélög að vera sjálfbærar þjónustu- og rekstrareiningar. Fækka þurfi sveitarfélögum og skilgreina verkefni sem sveitarfélag verði að geta sinnt eitt og óstutt. Tillögurnar eru eftirfarandi:

  • Hækkun lágmarksíbúafjölda í þrepum.
  • Langtíma stefnumótun til 20 ára.
  • Fjármögnun sveitarfélaga stuðli að hagkvæmu skupulagi sveitarstjórnarstigsins.
  • Íbúar kjósi ekki um sameiningar.
  • Gagnger endurskoðun lagaramma samninga um samvinnu sveitarfélaga, hlutverk byggðasamlaga og stöðu landshlutasamtaka sem og frjálsra félagasamtaka.
  • Verkefni verði flutt til sveitarfélaga og ábyrgð sveitarfélaga á opinberum fjármálum og samspili við hagstjórn verði styrkt.
  • Nýta samtal og samráð til að auka virkni og aðkomu íbúa að ákvarðanatöku og stefnumótun.

Jón Gunnarsson segir hér komið mikilvægt plagg sem nýtist við stefnumótun í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um að efla byggð í landinu og efla sveitarfélög til dæmis með sameiningum. Næsta skref er að starfhópur tekur við keflinu og vinnur með tillögurnar áfram í samstarfi við ráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga og ynni stefnu í málefnum sveitarfélaga til næstu ára.

Starfhópinn skipa: Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ sem er formaður hópsins, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, ráðgjafi hjá Ráðrík ehf., Steinunn María Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi í Fjallabyggð og ráðgjafi hópsins verður Magnús Karel Hannesson fyrrverandi sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta