Hoppa yfir valmynd
19.03.2018 Innviðaráðuneytið

Meðferð reikningsskila vegna leigusamninga ríkis og sveitarfélaga um hjúkrunarheimili

Reikningsskilaráð hefur svarað erindi reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga um áhrif leigusamninga ríkis og sveitarfélaga um hjúkrunarheimili á reikningsskil sveitarfélaga. Er það niðurstaða reikningsskilaráðs að eðlilegast sé að færa slíka samninga sem langtímakröfu á íslenska ríkið.

Reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga óskaði eftir áliti reikningsskilaráðs á þessu efni og hvort slíkir leigusamningar teljist vera rekstrarleigusamningar eða fjármögnunarleigusamningar en tvö endurskoðunarfyrirtæki sem nefndin leitaði til gáfu ólík álit um efnið.

Reikningsskilaráð fór yfir leigusamninga um hjúkrunarheimili við átta sveitarfélög, kannaði álit endurskoðunarfyrirtækjanna og ræddi við endurskoðendur sem hafa unnið við ársreikninga sveitarfélaga. Niðurstaða ráðsins er að reikningsskil sveitarfélaga „endurspegli best eðli þessara gerninga með því að færa inn langtímakröfu á íslenska ríkið sem ígildi núvirts samningsbundins framlags þess til endurgreiðslu á stofnkostnaði hjúkrunarheimila. Langtímakrafan endurspeglar samningsbundinn rétt sveitafélagsins til þess að móttaka handbært fé eða aðra fjáreign samkvæmt samningi við ríkið og fellur því undir skilgreiningu á fjáreign,“ segir í niðurstöðu ráðsins.

Nánari útskýringu má sjá í bréfi reikningsskilaráðs til reikningsskila- og upplýsinganefnd sveitarfélaga, dags. 8. mars 2018.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta