Hoppa yfir valmynd
29.10.2018 Innviðaráðuneytið

Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð lögð fram í samráðsgátt til umsagnar

Samráðsgátt - opið samráð við almenning - mynd

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur lagt drög að nýrri reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í drögunum eru gerðar breytingar á forsendum útgjaldajöfnunarframlaga og efni gildandi reglugerðar, nr. 960/2010, uppfært í takt við breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.

Breytingar á forsendum útgjaldajöfnunarframlaga eru byggðar á vinnu sem hefur farið fram við endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs á undanförnum árum. Markmið þeirra eru að:

  • auka jöfnuð milli sveitarfélaga.
  • styrkja millistór sveitarfélög og draga úr framlögum til tekjuhærri sveitarfélaga.
  • draga úr neikvæðum áhrifum vegna sameiningar sveitarfélaga á framlög sjóðsins til útgjaldajöfnunar og styrkja þar með hvata til sameiningar.
  • auka framlög til sveitarfélaga sem eru með hlutfallslega mörg börn á grunnskólaaldri, sveitarfélaga sem hafa marga þéttbýliskjarna og sveitarfélaga á vaxtarsvæðum.

Gert er ráð fyrir því að framangreindar breytingar taki gildi um næstu áramót.

Nánari umfjöllun má lesa í samráðsgátt stjórnvalda

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta