Umsóknarfrestur um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna framlengdur
Frestur til að senda umsóknir um framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar hefur verið framlengdur til miðnættis föstudaginn 14. ágúst.
Markmiðið með verkefninu (aðgerð A.10 - Almenningssamgöngur um land allt) er að styðja við þróun almenningssamgangna, einkum út frá byggðalegum sjónarmiðum. Til ráðstöfunar verða allt að 32,5 milljónir kr.
Styrkhæf verkefni:
- Þjónusta. Verkefni sem snúast um að samþætta almenningssamgöngur annarri þjónustu eða breytingum á rekstrarformi, s.s. deililausnum og samflutningum.
- Markaðsmál. Markaðsátak sem miðar að því að bæta nýtingu á núverandi þjónustu. Getur verið í ýmsu formi og beinst að mismunandi hópum.
- Rannsóknir og þróun. Verkefni sem miða t.d. að nýsköpun í þjónustu.
Við forgangsröðun umsókna verður litið til verkefna sem styðja við:
- Heildarstefnu í almenningssamgöngum milli byggða (Ferðumst saman).
- Byggðasjónarmið og áherslur sem fram koma í stefnumótandi byggðaáætlun.
- Önnur atriði sem skipta máli við mat á aðstæðum viðkomandi svæðis eða landshluta.
Þriggja manna valnefnd gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Áætlað er að niðurstöður ráðherra liggi fyrir í september 2020. Byggðastofnun annast fyrir hönd ráðuneytisins samningsgerð við styrkþega, umsýslu með greiðslum og eftirlit með framkvæmd verkefnis.
Fylgiskjöl