Hoppa yfir valmynd
01.11.2021 Innviðaráðuneytið

Áætluð tekjujöfnunarframlög fyrir árið 2021

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2021.

Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr. sem er hækkun um 150 m.kr. frá árinu 2020. Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Einungis kemur til greiðslu framlags hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars.

Þann 29. október sl. komu ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu samtals 1.050 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Ráðherra samþykkti tillöguna á grundvelli 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018 og að teknu tilliti til breytingar nr. 1216/2021 á reglugerðinni sem samþykkt var 28. október 2021. 

 

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta