Ársfundur Byggðastofnunar 2022
Ársfundur Byggðastofnunar 2022 verður haldinn í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í Borgarfirði fimmtudaginn 5. maí. Þema fundarins verður ,,óstaðbundin störf". Fundurinn er öllum opinn og gert er ráð fyrir að honum ljúki um kl. 15:30.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
- 13:00 Setning fundarins og ávarp formanns stjórnar Byggðastofnunar - Magnús B. Jónsson, stjórnarformaður Byggðastofnunar
- 13:15 Ávarp innviðaráðherra - Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra
- 13:30 Ávarp forstjóra Byggðastofnunar - Arnar Már Elíasson settur forstjóri Byggðastofnunar
- 13:40 Hver er stefna hins opinbera varðandi óstaðbundin störf? - Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu og formaður stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál
- 14:05 Hvað segja fræðin um óstaðbundin störf? - Óli Halldórsson, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Þingeyinga og Ellý Tómasdóttir, MS í mannauðsstjórnun frá HÍ
- 14:50 Hver er eftirspurnin eftir óstaðbundnum störfum? - Þorkell Stefánsson, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar
- 15:15 Afhending Landstólpans
Fundarstjóri er Helga Harðardóttir, sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar.