Hoppa yfir valmynd
04.01.2023 Innviðaráðuneytið

Framlög Jöfnunarsjóðs árið 2023 vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um úthlutun á framlagi til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2023. Jafnframt samþykkti ráðherra tillögu um áætluð framlög til sveitarfélaga, sem byggjast á reglugerðinni fyrir árið 2023, að fjárhæð 1.100 milljónir króna.

Þetta er uppfærsla á reglugerð nr. 1455/2021 sem gildir einungis fyrir framlög ársins 2022. Fram kemur í 2. grein reglugerðarinnar með hvaða hætti framlög skulu reiknuð. Úthlutun byggist á fjórum forsendum sem allar hafa jafnt vægi:

  1. Fjöldi barna í hverju sveitarfélagi.
  2. Fjöldi barna með stuðning í leik- og grunnskóla.
  3. Fjöldi barna á lágtekjuheimilum.
  4. Fjöldi barna af erlendum uppruna.

Framlög verða enduráætluð í janúar 2023 þegar uppfærð gögn berast frá Hagstofu Íslands um fjölda barna á lágtekjuheimilum vegna tekna ársins 2021 og uppfærslu á fjölda barna með stuðning í leik- og grunnskóla. Reglugerðin verður birt innan tíðar í Stjórnartíðindum.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta