Hoppa yfir valmynd
25.09.2023 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2024

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2024.

Áætluð framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2024

Áætluð útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga munu nema alls 15.800 m.kr. árið 2024. Ráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar þess efnis, sbr. b. liðar 12. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, að fjárhæð 15.800 m.kr.

Til úthlutunar nú koma 15.000 m.kr. samkvæmt A-hluta framlaganna og 575 m.kr. samkvæmt B-hluta framlaganna vegna skólaaksturs úr dreifbýli eða samtals 15.575 m.kr. Í desember koma til úthlutunar 175 m.kr. til viðbótar vegna skólaaksturs úr dreifbýli á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við aksturinn á árinu. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað á árinu 2024 vegna akstursþjónustu fyrir fatlað fólk úr dreifbýli.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2024 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2024. Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfjármagn sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2024.

Um er að ræða 1.800 m.kr. hækkun frá áætlun framlaganna á árinu 2023. 

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla á árinu 2024, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002, að fjárhæð samtals 14.660 m.kr. Þar af eru 60 m.kr. vegna áætlaðs uppgjörs framlaga ársins 2022.

Áætlunin verður tekin til endurskoðunar í apríl 2024 á grundvelli íbúafjölda 1. janúar 2024, endanlegs álagningarstofns útsvars vegna ársins 2022 og  endurskoðunar á áætluðum útsvarstekjum sveitarfélaga á árinu 2023.

Framlögin koma til greiðslu mánaðarlega og taka mið af innkomnum tekjum sjóðsins af 0,77% hlutdeild hans í staðgreiðsluskilum viðkomandi mánaðar. 

Athygli er vakin á því að erfitt er að spá fyrir um skatttekjur ríkissjóðs og áætla hverjar útsvarstekjur sveitarfélaga verða á næsta ári. Því kunna þær heildarfjárhæðir sem varið er til þessara framlaga að breytast.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra grunnskólanemenda

Þá hefur ráðherra jafnframt samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætlaða úthlutun framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri á árinu 2024.

Áætlunin verður tekin upp og endurskoðuð í nóvember 2024.

Framlag vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál

Ráðherra hefur loks samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar um áætluð framlög vegna íslenskukennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál á árinu 2024, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 351/2002.

Gert er ráð fyrir að endanleg áætlun verði tekin fyrir í mars næstkomandi.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta