Byggðaráðstefnan 2023 – Búsetufrelsi?
Byggðaráðstefnan verður haldin 2. nóvember 2023, í Reykjanesbæ, milli kl. 9-16. Fjallað verður um búsetufrelsi og niðurstöður rannsóknarverkefnisins Byggðafesta og búferlaflutningar sem unnið var á vegum Byggðastofnunar í samvinnu við sérfræðinga við ýmsar íslenskar og erlendar háskólastofnanir. Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land. Leitast er við að ná fram ólíkum sjónarhornum þeirra sem vinna að rannsóknum og stefnumótun á vettvangi byggðamála með áherslu á tiltekinn málaflokk hverju sinni.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, flytur ávarp og Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu, verður með erindi.
Ráðstefnan á erindi við sveitarstjórnarfólk, fulltrúa atvinnulífs, stefnumótendur og alla sem starfa eða sinna rannsóknum á vettvangi byggðamála.
Lokað hefur verið fyrir skráningu en hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi.