Hoppa yfir valmynd
21.11.2023 Innviðaráðuneytið

Skilgreining á opinberri grunnþjónustu

Ríkisstjórnin leggur áherslu á að jafna aðgengi íbúa landsins að þjónustu. Í byggðaáætlun er lögð áhersla á að opinber grunnþjónusta verði skilgreind í lögum og hvernig réttur íbúa landsins til hennar verði tryggður óháð búsetu. Aðgerð A.15 Opinber grunnþjónusta og jöfnun aðgengis felur meðal annars í sér að skilgreint verði aðgengi að opinberri grunnþjónustu, sem og lágmarksþjónustustig fyrir dreifbýli þar sem of kostnaðarsamt getur þótt að veita þjónustuna.

Að beiðni innviðaráðuneytisins vann Byggðastofnun drög að skilgreiningu á opinberri grunnþjónustu, ásamt greinargerð. Drögin hafa nú verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda og verða þar opin til umsagna og ábendinga til 7. febrúar 2024.

Í drögunum segir að opinber grunnþjónusta er þjónusta opinberra aðila, þ.e. ríkis og sveitarfélaga, sem er aðgengileg öllum íbúum landsins og nauðsynleg til að skapa fullnægjandi búsetuskilyrði um land allt. Opinber grunnþjónusta er forsenda þess að fólk geti stundað atvinnu, sótt menntun og frístundastarf og sinnt öðrum daglegum verkefnum og þörfum.

Það er á ábyrgð stjórnvalda, ríkis og sveitarfélaga að ákveða viðmið um þjónustustig lágmarksþjónustu fyrir dreifbýli. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 ber sveitarstjórnum að móta stefnu um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðalögum fjarri stærstu byggðakjörnum. Þá samþykkti ríkisstjórnin á fundi þann 15. september síðastliðinn tillögu fjármála- og efnahagsráðherra að hefja vinnu við mótun stefnu um opinbera þjónustu, sem felur meðal annars í sér að sett verði þjónustuviðmið um þá þjónustu sem veitt er af hálfu ríkisstofnana.

Skilgreiningin að opinberri grunnþjónustu er fyrst og fremst ætluð stjórnvöldum, bæði ríki og sveitarfélögum, til leiðbeiningar við stefnumótun, framkvæmd stefna og við mat á áhrifum lagafrumvarpa og annarra stjórnvaldsfyrirmæla eða stefnumarkandi ákvarðana hins opinbera.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta