Hoppa yfir valmynd
15.02.2024 Innviðaráðuneytið

Tíu verkefni fá alls 130 milljónir króna í styrk af byggðaáætlun

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur úthlutað styrkjum að upphæð 130 milljónum króna til tíu verkefna á vegum sjö landshlutasamtaka sveitarfélaga. Styrkjunum er ætlað að efla byggðir landsins og er úthlutað til sértækra verkefna á sóknaráætlanasvæðum í samræmi við stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022-2036 (aðgerð C.1). Alls bárust 18 umsóknir um styrki að fjárhæð rúmar 371 m.kr. fyrir árið 2024.

Markmiðið með framlögunum er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Áhersla er lögð á að styrkja svæði þar sem er langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Verkefni sem hljóta styrk skulu nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans, eða landshlutanum í heild. Íbúaþróun, samsetning atvinnulífs og atvinnustig og meðaltekjur var meðal þess sem lagt var til grundvallar við mat á umsóknum.

Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Verkefnin sem hljóta styrk eru:

  • Hjartað í Húnaþingi vestra – tæknismiðja til að hvetja nýsköpun og auka fjölbreytni í atvinnulífi. Uppsetning tæknimiðstöðvar í anda FabLab smiðja í samfélagsmiðstöð í félagsheimilinu á Hvammstanga. Koma á upp aðstöðu til nýsköpunar, viðgerða og þróunar fyrir íbúa, sem og aðstöðu fyrir félagsstarf. Fyrirmynd sótt til Finnlands og Borgundarhólms. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 10.500.000.
  • Samvinnurými. Skapa á samvinnurými á Skagaströnd með því að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess. Húsið var áður fiskvinnsluhús. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Kuklið – frumkvöðlasetur matvæla. Breyta og standsetja hluta gamals fiskvinnsluhúss sem Galdur Brugghús nýtir einnig. Með Kuklinu verður boðið upp á matvælaframleiðslu með aðgengi að framleiðslurými og klasamyndun. Atvinnuástand á Hólmavík er afar slæmt m.a. eftir lokun rækjuvinnslunnar Hólmadrangs. Kuklið er í eigu einkaaðila. Fjórðungssamband Vesfirðinga hlýtur styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Samfélagsmiðstöð á Bakkafirði – nýtt hlutverk skólans sem vinnu- og samverurými. Búa á til klasasetur í hluta skólahúsnæðis og auka þjónustu við heimamenn. Sköpuð verður aðstaða til fjölbreyttrar atvinnustarfsemi, efla fjarnám og gefa samastað fyrir samkomur og viðburði. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hljóta styrk að upphæð kr. 12.500.000.
  • Tilraunagróðurhús. Nýta á glatvarma frá gagnaveri Borealis á Blönduósi, reisa tilraunagróðurhús og veita frumkvöðlum aðgengi til að prófa og þróa vöru og gera svæðið þannig eftirsóknarvert fyrir matarfrumkvöðla. Orka einnig tryggð með sólarrafhlöðum. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Stuðningur við uppbyggingu, þróun og markaðssetningu á Reykjanesi. Öflug verkefnavinna til stuðnings við samfélög og atvinnulíf á Suðurnesjum vegna eldsumbrota á Reykjanesi. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hlýtur styrk að upphæð kr. 17.000.000.
  • Lýsistankarnir á Raufarhöfn. Gera á lýsistankana á Raufarhöfn manngenga og mögulega til notkunar fyrir kvikmyndagerð, tónleika og menningarviðburði. Tankarnir eru sagðir einstakir og hafa sögulegt gildi. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra hljóta styrk að upphæð kr. 15.000.000.
  • Fjölmenning og inngildingaráætlanir á Suðurlandi. Verkefnið er framhald verkefnisins Aðgerðaáætlun um sjálfbæra lýðfræðilega þróun miðsvæðis Suðurlands sem hlaut styrk úr C.1 árið 2022. Með þessu verkefni á að efla jákvæða byggðaþróun með jafningjafræðslu og valdeflingu sveitarfélaga, með handleiðslu við mótun stefnu og aðgerða hvað varðar nýja íbúa. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hljóta styrk að upphæð kr. 10.000.000.
  • Samkomuhúsið Breiðablik – íbúa- og gestastofa á Snæfellsnesi. Uppbygging á starfsemi íbúa- og gestastofu Snæfellsness og efling á hlutverki félagsheimilisins Breiðabliks sem samfélags- og nýsköpunarmiðstöðvar á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bæði sem félagsmiðstöð, gestastofa og nýsköpunarmiðstöð. Ráða á verkefnisstjóra og gera endurbætur á eldhúsi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hljóta styrk að upphæð kr. 10.000.000.
  • Sjávarföll. Vinna með vörur sem byggja á íslenskum matarhefðum og nýrri framleiðslu. Markaðsgreining, auka samstarf, vöruþróun, nýsköpun og þekkingaryfirfærslu. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hlýtur styrk að upphæð kr. 10.000.000.

Í valnefndinni sitja þau Elín Gróa Karlsdóttir, fjármálastjóri hjá Ferðamálastofu, Sigurður Árnason, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, sem jafnframt er formaður og Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar. Með valnefnd starfar Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun innviðaráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna.

  • Tíu verkefni fá alls 130 milljónir króna í styrk af byggðaáætlun - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta