Framlög Jöfnunarsjóðs 2024 vegna samþættingar á þjónustu í þágu farsældar barna
Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga á grundvelli reglugerðar nr. 144/2024 til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna að fjárhæð 1.078 m.kr. á árinu 2024.
Áætlun framlaga hefur verið uppfærð á grundvelli uppfærðra upplýsinga frá Hagstofu Íslands en þær eru:
- Fjöldi barna 1. janúar 2023.
- Meðaltal barna með stuðning í grunnskólum skólaárin 2019/2020, 2020/2021 og 2021/2022 og fjöldi barna með stuðning í leikskólum árin 2020, 2021 og 2022.
- Fjöldi barna á heimilum með undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna árið 2022.
- Fjöldi innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð 1. janúar 2023.