Hoppa yfir valmynd
05.06.2024 Innviðaráðuneytið

Nýr rafstrengur lagður til Grindavíkur til bráðabirgða

Nýr rafstrengur verður lagður til Grindavíkur til bráðabirgða í því skyni að koma á rafmagni í bænum. Rafstrengir höfðu gefið sig í yfirstandandi jarðhræringum við Sundhnjúksgíga.

Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur telur brýnt að tryggja rafmagn til bæjarins. Nefndin hefur því gert tillögu til innviðaráðherra um að um heimila og fjármagna neyðartengingu. Tillagan var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær. Nefndin tók formlega til starfa um mánaðamótin og er þetta meðal fyrstu verkefna hennar.

Útfærsla á bráðabirgðatengingu var unnin í samvinu við HS Veitur en talið er að framkvæmdir við slíka tengingu taki allt að sex daga.

Áfram verður fjallað um leiðir til að koma á varanlegri eða endanlegra tengingu milli flutningskerfis Landsnets  og Grindavíkur.

Nánari lýsing á bráðabirgðatengingunni

Helming leiðarinnar, þar sem bráðabirgðatengingin verður lögð, verður notast við eldri streng sem liggur frá Svartsengi að borplani HS Orku. Nýr hluti verði plægður í vegkant borholuvegar og strengur dysjaður þar sem ekki er unnt að ná fullri dýpt.

Nýr jarðstrengur verður tengdur í jarðstöð á Borholuplani HS Orku og síðan í dreifistöð DRE-154 við Matorku og þannig er verið að nýta þá innviði sem fyrir eru. Frá dreifistöðinni liggja strengir til Grindavíkur og nærliggjandi fyrirtækja. Nýja hraunið eyðilagði hluta strengs sem liggur frá DRE-154 til Grindavíkur. Á þeim hluta leiðarinnar þarf að leggja nýjan streng meðfram nýja hrauninu og inn í Grindavík.

Gert er ráð fyrir að hægt sé að flytja allt að 4-5 MW um strenginn.  

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta