Húsnæðislán
Tilgangur laga um húsnæðismál er að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika fólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.
Samkvæmt lögunum skal Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem veitir einstaklingum, sveitarfélögum, félögum og félagasamtökum húsnæðislán til íbúðarkaupa og byggingarframkvæmda. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er fjárhagslega sjálfstæður og stendur undir lánveitingum og rekstri með eigin tekjum.
Sjá einnig:
Yfirlit um lög
Yfirlit um reglugerðir
Stofnanir
Úrskurðarnefndir
Áhugavert
Húsnæðis- og mannvirkjamál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.