Hoppa yfir valmynd

Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir

Landspítali

Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustu á Íslandi og skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi sem nánar er kveðið á um í reglugerð. 

Í lögum um heilbrigðisþjónustu er áhersla lögð á að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og eftirlit með henni. Einnig er lögð áhersla á að almenn heilbrigðisþjónusta sé veitt í heimabyggð og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Þrátt fyrir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi skulu sjúklingar „jafnan eiga rétt á að leita til þeirrar heilsugæslustöðvar eða heilbrigðisstofnunar sem þeir eiga auðveldast með að ná til hverju sinni“.

Heilbrigðisstofnanir 

Í hverju heilbrigðisumdæmi er starfrækt heilbrigðisstofnun eða heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi. Þær skulu eiga með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði.

Sjúkrahúsþjónusta

Á sjúkrasviðum heilbrigðisstofnana skal veita almenna sjúkrahúsþjónustu, meðal annars á göngu- og dagdeildum eftir því sem við á. Í tengslum við þau skulu vera hjúkrunarrými og fæðingarhjálp að uppfylltum faglegum kröfum og önnur heilbrigðisþjónusta sem heilbrigðisstofnuninni er falið að veita eða samið hefur verið um.

Sérhæfð heilbrigðisþjónusta

Sérhæfð heilbrigðisþjónusta er veitt á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og öðrum  heilbrigðisstofnunum samkvæmt samningum eða ákvörðun heilbrigðisráðherra.

Landspítali er aðalsjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Hann veitir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu, m.a. á göngu- og dagdeildum, fyrir alla landsmenn og almenna sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa heilbrigðisumdæmis höfuðborgarsvæðisins.

Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og sérhæft sjúkrahús. Það veitir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu, m.a. á göngu- og dagdeildum, og almenna sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa í sínu heilbrigðisumdæmi.

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta