Heilbrigðisumdæmi
Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustunnar og um skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi. Heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi eiga samkvæmt lögunum að hafa með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði.
Kveðið er á um skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi í reglugerð ráðherra nr. 111/2020.
Samkvæmt reglugerðinni skulu heilbrigðisstofnanir innan heilbrigðisumdæma hafa samráð um:
- Skipulag heilsugæslu í umdæminu með það að markmiði að tryggja öllum íbúum aðgengi að heilsugæslu í heimabyggð og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga.
- Skipulag hjúkrunarþjónustu í heimahúsum, hjúkrunarrýmum stofnana og á hjúkrunarheimilum með það að markmiði að allir íbúar í umdæminu eigi kost á fullnægjandi hjúkrunarþjónustu í samræmi við þarfir sínar.
- Skipulag almennrar sjúkrahúsþjónustu í umdæminu.
Í reglugerð ráðherra er einnig kveðið á um stig heilbrigðisþjónustu sem eru eftirfarandi:
- Fyrsta stigs heilbrigðisþjónusta: Heilsugæsla, heilsuvernd og forvarnir, bráða- og slysamóttaka og önnur heilbrigðisþjónusta á vegum heilsugæslustöðva. Þjónusta og hjúkrun á hjúkrunarheimilum, í hjúkrunar- og dvalarrýmum stofnana og í dagdvöl.
- Annars stigs heilbrigðisþjónusta: Heilbrigðisþjónusta sem veitt er á sjúkrahúsum, heilbrigðisstofnunum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna samkvæmt ákvörðun ráðherra eða samningum sem gerðir eru í samræmi við ákvæði VII. kafla laga um heilbrigðisþjónustu og lög um sjúkratryggingar og önnur þjónusta sem að jafnaði er ekki veitt á heilsugæslustöðvum og fellur ekki undir þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.
- Þriðja stigs heilbrigðisþjónusta: Heilbrigðisþjónusta sem veitt er á sjúkrahúsi og krefst sérstakrar kunnáttu, háþróaðrar tækni, dýrra og vandmeðfarinna lyfja og aðgengis að gjörgæslu.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
HEILBRIGÐISMÁL
Síðast uppfært: 12.12.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.