E. Lög og reglur |
Lýsing á aðgerð
Gerðar verði breytingar á reglugerð nr. 441/2006, um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs, og viðauka IV við sömu reglugerð í því skyni að afnema mismunun gagnvart samkynhneigðum þegar kemur að blóðgjöf.
Markmið aðgerðarinnar verði að afnema mismunun sem blóðgjafar hafa sætt á grundvelli kynhneigðar.
Tímaáætlun: 2022–2023.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 3.8 og 5.6.
Staða verkefnis í október 2024: Reglugerð tekur gildi um áramót.
Ábyrgð
Heilbrigðisráðuneytið
Hafið