Lýsing á aðgerð
E.2. Fræðsla fagaðila, sjálfboðaliða og annarra sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum.
Fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni verði beint sérstaklega að fagaðilum, sjálfboðaliðum og öðrum sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum, þar á meðal innan heilbrigðiskerfisins, íþróttafélaga, í ferðaþjónustu fatlaðs fólks og á heimilum og í skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Sérstaklega verði fræðslu beint til sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa, íþróttaþjálfara og sjálfboðaliða og til starfsfólks á skammtímadvalarheimilum fyrir fötluð börn. Stjórnendur félaga og stofnana, með stuðningi frá forvarnafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, beri ábyrgð á fræðslunni. Tryggt verði að allt starfsfólk hljóti lágmarksfræðslu á netnámskeiði, sbr. aðgerð A.4, með áherslu á viðeigandi aldurshóp og viðbótarfræðslu sem fjalli með ítarlegri hætti um eðli og afleiðingar ofbeldis og áreitni gegn fötluðum börnum.
- Mælikvarði: 90% fagaðila, sjálfboðaliða og annarra sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum innan skipulagðra félaga eða stofnana hafi lokið netnámskeiði fyrir lok árs 2025.
- Kostnaðaráætlun: Innan ramma.
- Ábyrgðaraðili: Stjórnendur félaga og stofnana.
- Dæmi um samstarfsaðila: Forvarnafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Þroskahjálp, Öryrkjabandalag Íslands, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Tabú, Æfingastöðin, Íþróttasamband fatlaðra, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og Barnaverndarstofa.
Staða verkefnis
Aðgerðin er komin vel á veg. Haldinn var fundur með tengiliðum aðgerðarinnar og þingsályktunin kynnt árið 2022. Haldinn var fundur með tengiliðum aðgerðarinnar ásamt aðilum innan sveitarfélaga sem fara með mál fatlaðra barna og ungmenna í byrjun árs 2024 þar sem netnámskeið Barna- og fjölskyldustofu, sbr. aðgerð A.4, var kynnt og útskýrt að kallað yrði eftir gögnum um fjölda starfsfólks sem lokið hefur námskeiðinu vorið 2024. Svör bárust frá 15 sveitarfélögum, sem gerir um 24% svörun.
Verkefnið telst vera komið vel á veg.