Lýsing á aðgerð
A.2. Skólaskrifstofur sveitarfélaga.
Skólaskrifstofur sveitarfélaga, með stuðningi frá forvarnafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga, miðli þekkingu og veiti leikskólum og grunnskólum, ásamt frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum, stuðning til að tryggja að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði samþættar skólastarfi, einkum í kennslu, og að starfsfólk hljóti fræðslu. Skólaskrifstofurnar tryggi að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði markviss þáttur í skólastefnu sveitarfélaga og í forvarnastefnu hvers skóla um sig. Skólaskrifstofurnar haldi utan um tölfræðiupplýsingar um fræðslu í sínu umdæmi og miðli upplýsingum um árangur til forvarnafulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Mælikvarði: Allar skólaskrifstofur hafi miðlað þekkingu til leik- og grunnskóla á sínu svæði í lok árs 2024.
- Kostnaðaráætlun: Innan ramma.
- Ábyrgðaraðili: Skólaskrifstofur.
- Dæmi um samstarfsaðila: Forvarnafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, leik- og grunnskólar, Barnaverndarstofa og félagsþjónusta sveitarfélaga.
Staða verkefnis
Undirbúningur til að tryggja að forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni verði markviss þáttur í skólastefnu sveitarfélaga og forvarnarstefnu hvers skóla er vel á veg kominn. Í maí 2024 var kallað eftir gögnum um fjölda starfsfólks skóla sem lokið hafa netnámskeiði Barna- og fjölskyldustofu og bárust svör frá 140 leikskólum og 105 grunnskólum.
Verkefnið telst vera komið vel á veg.