Jafnréttisfulltrúar
Jafnréttisfulltrúar Stjórnarráðsins
Samkvæmt 27. grein laga um nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal í sérhverju ráðuneyti starfa jafnréttisfulltrúi sem hefur sérþekkingu á jafnrétti kynjanna. Hlutverk jafnréttisfulltrúa er að fjalla um og hafa eftirlit með jafnréttisstarfi á málefnasviði viðkomandi ráðuneytis og stofnana þess, þar á meðal skal jafnréttisfulltrúi vinna að samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða á málefnasviði ráðuneytisins. Jafnréttisfulltrúar starfa samkvæmt starfsreglum samþykktum af ráðuneytisstjórum og kveðja reglurnar á um hlutverk þeirra og samstarf þeirra á milli ráðuneyta.
Jafnréttisfulltrúar umsjón með eftirfylgni með jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins í samstarfi við þau sem fara með mannauðsmál í ráðuneytunum og yfirstjórnum ráðuneyta. Jafnréttisáætlunin tekur til Stjórnarráðsins sem sameiginlegs vinnustaðar starfsfólks í ráðuneytum og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki Stjórnarráðsins þau réttindi sem kveðið er á um í jafnréttislögum. Jafnréttisfulltrúi fylgir eftir aðgerðum jafnréttisáætlunarinnar í sínu ráðuneyti og tekur þátt í sameiginlegum verkefnum hennar.
Jafnréttisfulltrúi skilar árlegri greinargerð um stöðu og þróun kynjajafnréttis viðkomandi ráðuneytis til Jafnréttisstofu sbr. 27. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, þar sem m.a. er gert grein fyrir skipunum í nefndir og ráð.
Jafnréttisfulltrúar fylgja eftir stöðu aðgerða síns ráðuneytis í framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum en samkvæmt 26. grein laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal ráðherra leggja fyrir Alþingi á fjögurra ára fresti tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum að fengnum tillögum einstakra ráðuneyta og að loknu samráði við Jafnréttisstofu. Núverandi þingsályktun um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum er í gildi frá árinu 2020 til lok árs 2023. Framfylgd aðgerða er fylgt eftir með sérstöku mælaborði sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið sér um að uppfæra.
Jafnréttisfulltrúar fylgja einnig eftir stöðu verkefna síns ráðuneytis í aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022-2025. Framfylgd aðgerða er fylgt eftir með sérstöku mælaborði sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið sér um að uppfæra.
Jafnréttisfulltrúar Stjórnarráðsins:
- Ásta Bjarnadóttir, forsætisráðuneyti,
- Kristrún Friðriksdóttir, dómsmálaráðuneyti,
- Jóhanna Lind Elíasdóttir, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti,
- Þröstur Freyr Gylfason, fjármála- og efnahagsráðuneyti,
- Úlfar Kristinn Gíslason, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti,
- Brynhildur Magnúsdóttir, heilbrigðisráðuneyti,
- Arndís Dögg Arnardóttir, innviðaráðuneyti,
- Bryndís Guðrún Knútsdóttir, matvælaráðuneyti,
- Þórarinn Örn Þrándarson, menningar- og viðskiptaráðuneyti,
- Ingibjörg Ólafsdóttir, mennta- og barnamálaráðuneyti,
- Kristján Páll Guðmundsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti,
- Lára Kristín Pálsdóttir, utanríkisráðuneyti.
Starfsmaður hópsins er Sunna Diðriksdóttir, sérfræðingur á skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Saga jafnréttisfulltrúa Stjórnarráðsins
Kveðið er fyrst á um störf jafnréttisfulltrúa í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000. Þar segir „sérhvert ráðuneyti skal skipa jafnréttisfulltrúa sem fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisstarfi á málasviði ráðuneytisins og þeirra stofnana sem undir ráðuneytið heyra.“ Með sömu lögum voru fyrirtækjum og stofnunum með fleiri en 25 starfsmenn gert skylt að setja sér jafnréttisáætlun. Kom það í hlut jafnréttisfulltrúa að gera slíkar áætlanir fyrir sín ráðuneyti og sneru störf þeirra á fyrstu starfsárunum aðallega að réttindum starfsmanna samkvæmt jafnréttislögum auk þess að sinna þeim verkefnum sem fram komu í þingsályktunum um framkvæmdaáætlanir í jafnréttismálum. Fljótlega komst á óformlegt samstarf jafnréttisfulltrúa Stjórnarráðsins og Jafnréttisstofu sem síðar var formfest í starfsreglum jafnréttisfulltrúa.
Árið 2008 voru gerðar breytingar á hlutverki jafnréttisfulltrúa með tilkomu nýrra jafnréttislaga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla en þar kom fram krafa um sérþekkingu á málaflokknum og lögð áhersla á kynjasamþættingu í starfi jafnréttisfulltrúa. Í 13. grein laga nr. 10/2008 kemur fram að „í sérhverju ráðuneyti skal starfa jafnréttisfulltrúi sem hefur sérþekkingu á jafnréttismálum. Jafnréttisfulltrúi fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisstarfi á málefnasviði viðkomandi ráðuneytis og stofnana þess, þar á meðal skal hann vinna að kynjasamþættingu á málefnasviði ráðuneytisins.“ Í lögunum frá 2008 er fyrst sett fram skylda ráðuneyta til að samþætta jafnréttis- og kynjasjónarmið í allri stefnumótun, áætlanagerð og ákvarðanatöku á þeirra vegum sem og þeirra opinberu stofnana sem starfa á málasviði þeirra.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Stofnanir
Áhugavert
Jafnrétti
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.