Hoppa yfir valmynd

Jafnréttisþing 2015

Félags- og jafnréttismálaráðherra og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings í samræmi við lög nr. 10/2008, um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna og karla.

Á jafnréttisþingi leggur félags- og jafnréttismálaráðherra fram skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála á umliðnum tveimur árum. Hlutverk þingsins er að efna til umræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnumótun stjórnvalda í jafnréttismálum. Næsta jafnréttisþing verður haldið í október 2017 og verða upplýsingar birtar þegar nær dregur.

Á síðasta jafnréttisþingi, 25. nóvember 2015. Lögð var áhersla á stöðu kvenna og kynjaðar birtingarmyndir á opinberum vettvangi. Markmiðið var að varpa ljósi á ólíka stöðu kvenna og karla í fjölmiðlum og kvikmyndum annars vegar og hins vegar að fjalla um umfang og eðli kynbundinnar hatursorðræðu. Jafnréttisþingið var haldið á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi.

Aðalfyrirlesarar þingsins voru Maria Edström, lektor við Fjölmiðladeild Háskólans í Gautaborg og verkefnisstjóri Nordicom–verkefnis Norrænu ráðherranefndarinnar um aukið jafnrétti í fjölmiðlum, og Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Kynntar voru niðurstöður nýrra rannsókna um hlut kvenna og karla í íslenskum fjölmiðlum.

- Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs var veitt að lokinni dagskrá þingsins.

Hér fylgir dagskrá síðasta jafnréttisþings með tenglum á efni ólíkra fyrirlestra og niðurstöðum málstofa.

DAGSKRÁ

08:30 - 09:00
Skráning og afhending ráðstefnugagna
09:00 - 09:10
Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs. Ávarp og setning Jafnréttisþings 2015.
09:10 - 09:30
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Skýrsla félags- og húsnæðismálaráðherra um stöðu og þróun jafnréttismála 2013 - 2015
09:30 - 09:45
Rósa Guðrún Erlingsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu. Viðmælendur í fréttum og völdum umræðuþáttum fjölmiðla – niðurstöður könnunar velferðarráðuneytisins og Fjölmiðlavaktarinnar.
09:45 - 10.10
Guðný Gústafsdóttir, doktorsnemi og stundakennari við Háskóla Íslands. Kjarnmestu konur í heimi.
10:10 - 10.30
Kaffi
10:30 - 11:00
Maria Edström, lektor við rannsóknarstofnun um fjölmiðla og upplýsingamál við Háskólann í Gautaborg. Gender Equality in Media in a Nordic Perspective – how to make Change.
11:00 - 11:30

Viðbrögð og umræður:

  • Eva María Jónsdóttir, fjölmiðlakona og miðaldafræðingur.
  • Kolbeinn Tumi Daðason, aðstoðarritstjóri á 365 miðlum.
11:30 - 11:45 
Uppistand. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari. Vertu ung, vertu sæt!
11:45 - 12:45
Hádegismatur
12:45 - 14:30

MÁLSTOFUR

  • Kyn og fjölmiðlar
  • Kyn og kvikmyndir
  • Kyn og hatursorðræða
14:30 - 14:50
Kaffi
14:50 - 15:10
Málstofustjórar gera grein fyrir umræðum úr málstofum.
15:10 - 15:40
Elsku stelpur! Siguratriði Hagaskóla í Skrekk 2015 sýnt á tjaldi. Pallborðsumræður um ungt fólk og kynjajafnrétti með fulltrúum sigurliðsins og alþingismönnunum Unni Brá Konráðsdóttur og Guðmundi Steingrímssyni. Umræðum stýrir Eva María Jónsdóttir, fjölmiðlakona.
15:40 - 16:10
Anna Serner, forstöðumaður sænsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. Gender Equality in Film Funding in a Nordic Perspective – how to ensure Fairness and Equality when Funding Film Productions.
16:10 - 16:40

Viðbrögð og umræður:

  • Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
  • Hilmar Sigurðsson, formaður SÍK - Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
16:40 - 16:55
Uppistand. Hugleikur Dagsson, uppstandari. Um birtingarmyndir kvenna og karla.
16:55 - 17:15
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. Ávarp og slit.
17:15 - 17:45
Fjölmiðlaviðurkenning Jafnréttisráðs 2015 í Vox Home.
17:45
Móttaka

Málstofur

Málstofa 1 Kyn og fjölmiðlar

Málstofustjóri: Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar. 

Málstofa 2 Kyn og kvikmyndir

Málstofustjóri: María Reyndal, leikstjóri og handritshöfundur.

Málstofa 3 Kyn og hatursorðræða

Málstofustjóri: Þórður Kristinsson, mannfræðingur.

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 13.9.2021
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta