Allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna (UPR)
Allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna (Universal Periodic Review eða UPR) felur í sér heildarúttekt á stöðu mannréttindamála innan aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna, en hún fer fram á u.þ.b. fimm ára fresti. UPR-ferlið byggir á jafningjarýni ríkja þ.e. ríkin fara yfir stöðu mannréttindamála hjá hverju öðru og koma með ábendingar og áskoranir um það sem mætti betur fara. Markmiðið með þessu ferli er meðal annars að bæta stöðu mannréttindamála í heiminum og hvetja ríki til þess að uppfylla skuldbindingar sínar á sviði mannréttindamála. Fyrsta úttektin á stöðu mála hér á landi fór fram árin 2011 til 2012, önnur árin 2016 til 2017 og þriðja árin 2021 til 2022. Fjórða úttektin mun fara fram árin 2026 til 2027.
Hér má sjá stöðu þeirra tilmæla sem Íslandi bárust í síðustu allsherjarúttekt.
Hér að neðan er að finna tengla á skýrslur íslenskra stjórnvalda vegna UPR-ferlisins og lokaniðurstöður mannréttindaráðsins.
Skýrslur frá Íslandi
Skýrslur til Íslands
Mannréttindi
Sjá einnig:
Sameinuðu þjóðirnar
Mannréttindi
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.