Þriðja skýrsla um stöðu mannréttindamála á Íslandi
Komin er út skýrsla Íslands í tilefni af þriðju allsherjarúttekt mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála (Universal Periodic Review – UPR). Í skýrslunni er farið yfir það hvernig íslensk stjórnvöld hafa fylgt eftir þeim tilmælum sem Ísland fékk í síðustu allsherjarúttekt, sem fór fram árin 2016 til 2017. Með skýrslunni fylgir einnig yfirlit yfir tilmælin og stöðu þeirra. Skýrslan verður lögð til grundvallar við fyrirtöku hjá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í janúar 2022.
Stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi, þar sem eiga sæti fulltrúar allra ráðuneyta, hefur haldið utan um skýrsluskrifin. Í upphafi skýrslunnar er farið almennt yfir eftirfylgni Íslands og samráð við gerð skýrslunnar. Síðan er farið yfir innleiðingu þeirra tilmæla sem Ísland samþykkti í síðustu útttekt og tekur kaflaskipting skýrslunnar mið af framsetningu þeirra.
Á mannréttindavef dómsmálaráðuneytisins má nálgast nánari upplýsingar um allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna.
- Skýrsla Íslands í tilefni af þriðju allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála á Íslandi
- Fylgiskjal með þriðju skýrslu Íslands um stöðu mannréttindamála
- Iceland's National report for the Universal Periodic Review of the UNHRC Third Cycle
- Status of implementaion of recemmendations to Iceland in the second UPR cycle